Ísland eins og verndaður vinnustaður vegna hafta

10016383354_79a4c3bbdb_z.jpg
Auglýsing

Með því að vera með fjár­magns­höft á Íslandi er verið að segja að Ísland sé ekki alvöru land sem ræður við sín mál, að sögn Jóns Dan­í­els­sonar hag­fræði­pró­fess­ors við London School of Economics. „Þú hefur valið að vera þorps­fíflið. Þetta er eins og vernd­aður vinnu­stað­ur,“ sagði Jón í erindi sínu á morg­un­fundi Sam­taka atvinnu­lífs­ins um afnám hafta í morg­un. Mbl.is segir frá þessu.

Jón sagði að höftin væru verstu mis­tök sem gerð hefðu verið í kjöl­far hruns­ins, sem og það að hafa ekki afnumið þau. Ekki sé rétt að treysta alþjóða­stofn­un­um, stjórn­mála­mönnum né ráð­gjöfum sem hafi hags­muni af höft­un­um. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn væri til dæmis að vernda hags­muni erlendra kröfu­hafa. Það væri ekki eftir neinu að bíða með afnám hafta. „Það er hægt að afnema höftin mjög hratt og það er hægt að gera það strax.“

Ýmis kostn­aður fylgi höft­un­um, sem ein­angri landið þannig að fyr­ir­tæki geti þró­ast og dafnað innan hafta, sem skapi hags­muni fyrir því að við­halda höft­un­um. Það séu líka auknar líkur á spill­ingu í þannig umhverfi. Til lengri tíma litið væri meiri kostn­aður af því að hafa höftin en að afnema þau. Ráð­herrar sem hugsi um næstu kosn­ingar vilji hins vegar ekki afnema höft, vegna skamm­tíma­kostn­að­ar.

Auglýsing

Jón sagði að þrennt kæmi í veg fyrir að höftin væru afnum­in. Í fyrsta lagi væri van­skiln­ingur á eðli fjár­mála­mark­aða og í öðru lagi væri mikið af slæmri ráð­gjöf. Í þriðja lagi væru það ráð­andi hags­munir að við­halda höft­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None