Ísland sigraði Tékkland og tók risaskref í átt að lokakeppni EM

kolbeinn.jpg
Auglýsing

Ísland sigr­aði Tékk­land 2-1 á troð­fullum Laug­ar­dals­velli í kvöld í toppslag A-rið­ils í und­ankeppni evr­ópu­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu . Sig­ur­inn gerir það að verkum að Ísland er á toppi rið­ils­ins með 15 stig og er skrefi nær því að kom­ast í loka­keppni evr­ópu­meist­ara­móts­ins í Frakk­landi næsta sum­ar. Mörk Íslands skor­uðu Aron Einar Gunn­ars­son og Kol­beinn Sig­þórs­son.

Fyrri hálf­leikur var ákaf­lega tíð­inda­lít­ill. Mikið um stöðu­bar­áttu og lítið um spil. Það gerði það að verkum að minnsta fram­gangi var fagnað eins og mark­tæki­færi væri um að ræða.

Tékkar reyndu að dæla mikið af boltum inn á tröllið Necid, sem byrj­aði í fremstu víg­línu hjá þeim að þessu sinni. Það skil­aði þó litlum árangri. Íslend­ingar sköp­uðu sér nokkrar ágætar sókn­ar­stöður en síð­asta send­ingin brást nán­ast án und­an­tekn­inga.

Auglýsing

Þrátt fyrir að umræður um laga­setn­ingu á verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga og ákveðnar starf­stéttir innan BHM stæðu enn yfir á Alþingi á meðan á leiknum stóð voru báðir for­víg­is­menn rík­is­stjórn­ar­inn­ar, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, mættir á leik­inn. Athygli vakti að Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, sem lætur sig sjaldn­ast vanta í heið­urs­stúk­una, var ekki mættur að þessu sinni. Þing­menn­irnir Krist­ján L. Möller og Willum Þór Þórs­son voru einnig í stúkunni í kvöld.

Tékkar skor­uðu síðan mark á 55. mín­útu og v ar þar að verki Borek Dockal með hörku­skoti sem var óverj­andi fyrir Hannes Þór Hall­dórs­son mark­vörð Íslend­inga. Við markið hresst­ust leikar umtals­vert og íslenska liðið virt­ist skipta um gír. Það varð til þess að liðið jafn­aði leik­inn á 60. mín­útu með skalla­marki fyr­ir­lið­ans Arons Ein­ars Gunn­ars­son­ar. Á 76. mín­útu var vara­mað­ur­inn Jón Daði Böðv­ars­son í bar­áttu fyrir utan víta­teig Tékka sem varð til þess að varna­maður Tékka tækl­aði bolt­ann inn í teig til Kol­beins Sig­þórs­sonar sem var einn á móti Peter Cech, mark­manni Tékka. Hann gerði engin mis­tök, fór fram­hjá mark­mann­inum með hjálm­inn, og renndi bolt­anum í autt mark­ið.

Einn stór­kost­leg­asti sigur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu­sög­unni stað­reynd.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None