Íslenska hæfileikaútrásin vekur heimsathygli

island1.jpg
Auglýsing

Liðin vika var stór fyrir Íslend­inga. Baltasar Kor­mákur frum­sýndi stór­mynd sína Ever­est, sem var eft­irunnin á Íslandi og skartar m.a. Ingvari E. Sig­urðs­syni, á einni merk­ustu kvik­mynda­há­tíð heims­ins í Fen­eyj­um. Myndin fékk að mestu góða dóma og ljóst að hún hefur þegar aukið hróður íslenskra lista­manna víða um heim.

Næst var komið að karla­lands­lið­inu í knatt­spyrnu, og því eina pró­senti þjóð­ar­innar sem fylgdi því til Amster­dam, að vinna stærsta sigur íslenskrar knatt­spyrnu­sögu á fimmtu­dag. Ungu strák­arnir í U-21 árs karlaknatt­spyrnu­lands­lið­inu tóku svo við kefl­inu á laug­ar­dag og lögðu stjörnum prýtt lið Frakka og sitja nú á toppi síns und­an­rið­ils.

Síðar sama dag spil­aði íslenska körfu­boltalands­liðið sinn fyrsta leik á stór­móti og var mjög nálægt því að vinna heima­menn í Þýska­landi fyrir framan þrettán þús­und manns í Berlín. Í þýska lið­inu eru þrír NBA-­leik­menn, þar á meðal lif­andi goð­sögnin Dirk Nowitzki. Frammi­staða íslenska liðs­ins, sem átti mögu­leika á sigri fram á lokamín­útur leiks­ins, vakti því mikla athygli.

Auglýsing

Í gær var svo rús­ínan í pylsu­end­an­um. Fyrst komst körfu­boltalands­liðið eins nálægt því að sigra Ítali og hægt var að kom­ast og síðan tryggði íslenska karla­lands­liðið sig inn á Evr­ópu­mótið í knatt­spyrnu í Frakk­landi næsta sumar með jafn­tefli gegn liði Kasakstan fyrir framan smekk­fullan Laug­ar­dals­völl.

Það má með sanni segja að ný teg­und af útrás Íslend­inga hafi náð ákveðnu hámarki í síð­ustu viku. Útrás sem byggði ekki á hroka, yfir­læti, afleið­um, kúlu­lán­um, vaxta­muna­við­skiptum eða blekk­ingum líkt og sú síð­asta heldur á hæfi­leik­um. Afleið­ing hennar er gríð­ar­lega jákvæð land­kynn­ing fyrir Ísland, sem hefur lík­ast til sjaldan eða aldrei verið jafn fyr­ir­ferða­mikið í heims­press­unni. Þ.e. nema þegar eld­gos, banka­hrun eða við­líka sér­ís­lenskar hörm­ungar eiga sér stað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None