Íslenska ríkið sýknað af kröfum fyrrum forstjóra Straums

14374823846_6e2fd8927c_c.jpg
Auglýsing

Íslenska ríkið var í dag sýknað í hér­aðs­dómi Reykja­víkur af kröfum Þórðar Más Jóhann­es­son­ar, fyrrum for­stjóra Straums hf. Þórður Már krafð­ist þess fyrir dómi að tekju­skatts- og útsvars­stofn hans vegna skatt­árs­ins 2007 yrði lækk­aður um tæpar 600 millj­ónir króna. Málið snérist um hvort skatt­leggja ætti hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum Þórðar Más sem fjár­magnstekjur eða hlunn­indi starfs­manns.

Upp­haf máls­ins má rekja til þess að á árunum 2004 og 2005 gerði Þórður Már tvo samn­inga við Straum í nafni fjár­fest­inga­fé­lags­ins Brekku ehf. um starfstengd kaup á hluta­bréfum í Straumi. Með fyrri samn­ingnum keypti Þórður Már hluta­bréf fyrir 327 millj­ónir króna og með seinni samn­ingnum kepti hann hluta­bréf í Straumi fyrir 1.350 millj­ónir króna. Sam­hliða var gerður samn­ingur um skil­yrtan kaup­rétt Straums auk þess sem Íslands­banki fjár­magn­aði að öllu leyti kaup­in. Brekka, félag Þórðar Más, var með samn­ingum við Straum tryggt fyrir lækkun á mark­aðs­verði bréf­anna en Straumi var skylt að kaupa bréfin til baka á að minnsta kosti upp­haf­legi sölu­verði.

Auglýsing


Yfir­skatta­nefnd úrskurð­aði árið 2013 á að með samn­ingum hafi Straumur veitt Þórði Má starfstengd hlunn­indi. Hagnað Brekku af við­skipt­unum ætti því að skatt­leggja sem launa­tengd hlunn­indi starfs­manns en ekki sem fjár­magnstekj­ur. Þessu mót­mæli for­stjór­inn fyrr­ver­andi fyrir hér­aðs­dómi, en honum var sagt upp störfum árið 2006. Þá seldi hann hluta­bréfin á mark­aði og inn­leysti 810 millj­óna króna sölu­hagn­að.



Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að úrskurður yfir­skatta­nefnd­ar, um að tekjur Brekku hafi átt að skil­greina sem skatt­skyld hlunn­indi starfs­mann. Íslenska ríkið var því sýknað af kröfum Þórðar Más um að lækka ætti tekju­skatts- og útsvars­stofn hans vegna gjald­árs­ins 2007 um nærri 600 millj­ónir króna. Málið dæmdu Þórður Clausen Þórð­ar­son hér­aðs­dóm­ari og með­dóm­end­urnir Ásmundur G. Vil­hjálms­son aðjúnkt og Hersir Sig­ur­geirs­son dós­ent.



Dómur hér­aðs­dóms.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None