Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki selt til Autodesk, kaupverðið trúnaðarmál

modio.jpg
Auglýsing

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Modio, sem var stofnað fyrir tæpum tveimur árum síð­an, hefur verið selt til alþjóð­lega hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Autodesk. Kaupin voru kynnt í dag en þau gengiu í raun í gegn í októ­ber síð­ast­liðn­um. Að sögn Hilm­ars Gunn­ars­son­ar, stofn­anda og for­stjóra Modio,  verður kaup­verðið ekki gefið upp. „Kaup­verðið er trún­að­ar­mál. En við vorum mjög sátt­ir.“

Hilmar stofn­aði Modio, sem þróar app fyrir snjall­síma og spjald­tölvur sem gerir hverjum sem er kleift að hanna skemmti­leg módel úr margs­konar ein­ingum og þrí­vídd­ar­prenta þau með lít­illi fyr­ir­höfn vorið 2013. Hann fjár­magn­aði félagið að öllu leyti sjálfur utan þess að tveir félagar hans gerð­ust litlir hlut­haf­ar.

Hann er því að vonum glaður með nið­ur­stöð­una. „Það er gaman að þetta skyldi ganga svona hratt í gegn. Félagið er búið að vera í gangi í rúmt eitt og hálft ár og þetta er ótrú­legur árangur á svona skömmum tíma.“

Auglýsing

Von á fjölgun á Íslandi



Modio kom fyrst á markað í maí 2014 og náði miklum vin­sældum meðal áhuga­manna um þrí­vídd­ar­prent­un. Síðan að kaup Autodesk gengu í gegn í októ­ber hefur verið unnið að nýrri útgáfu af app­inu sem nefn­ist nú Tin­kerplay. Nýja útgáfan af app­inu var kynnt í dag sam­hliða kaup­unum á Modio.

Í frétta­til­kynn­ingu kemur fram að Autodesk hygg­ist áfram rekstri þró­un­ar­skrif­stofu á Íslandi undir merkjum Autodesk með áherslu á þróun á Tin­kerplay og sam­þætt­ingu apps­ins við aðrar vörur Autodesk. Hilmar segir líkur á að þró­un­ar­skrif­stofan hér­lendis muni vaxa. „Við vorum fjórir þegar við gengum frá söl­unni í októ­ber og það eru þegar búnir að bæt­ast tveir við á síð­ustu vik­um. Það má því búast við því að þeim fjölgi eitt­hvað í við­bót.“

Hilmar starf­aði á árum áður um ára­bil hjá OZ á Íslandi og í Kanada og stýrði meðal ann­ars sölu­ferl­inu þegar OZ var selt til Nokia árið 2008. Hilmar hefur auk þess fjár­fest með góðum árangri í ýmsum íslenskum sprota­fyr­ir­tækjum á borð við Data­Mar­ket og Caoz á und­an­förnum árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None