Já kaupir allt hlutafé í Gallup

ja_gallup_samruni-1.jpg
Auglýsing

Já hefur keypt öll hluta­bréf í Gallup. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. KAup­verðið er ekki til­greint í henni en sagt að heild­ar­velta Já eftir kaupin verði um 1,7 millj­arðar króna. Ein­ungis tveir mán­uðir eru síðan að starfs­menn á rann­sókn­ar­sviði Capacent hefðu keypt rann­sókn­ar­hluta fyr­ir­tæk­is­ins og að það myndi þaðan af starfa undir merkjum Gallup. Mark­mið þeirra breyt­inga var sagt vera að skerpa áhersl­ur Capacent í ráð­gjöf og ráðn­ing­­ar­þjón­­ustu og Gallup í rann­­sókn­um og upp­­lýs­inga­þjón­­ustu.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Já og Gallup seg­ir: "Ný­verið gerði Já samn­ing við eig­endur Gallup um kaup á öllum hluta­bréfum í fyr­ir­tæk­inu. Já hefur und­an­farin ár lagt áherslu á upp­lýs­inga­þjón­ustu sem auð­veldar við­skipti og sam­skipti og Gallup hefur verið í for­ystu á sviði mark­aðs-, starfs­manna- og við­horfs­rann­sókna.  Með kaupum Já á Gallup hefur verið lagður grunnur að einu öfl­ug­asta upp­lýs­inga­fyr­ir­tæki lands­ins.  Heild­ar­velta Já eftir kaupin verður um 1,7 millj­arðar króna og fjöldi starfs­manna um eitt hund­rað.  Sam­eig­in­leg mark­mið Já og Gallup eru að bjóða upp­lýs­inga­þjón­ustu sem byggir á nýj­ustu tækni og traustum gögnum með við­skipta­vini í for­grunn­i.  Þjón­usta Gallup verður áfram undir merkjum Gallup og þjón­usta Já undir merkjum Já."

Sig­ríður Mar­grét Odds­dótt­ir, for­stjóri já, segir að mikil sér­fræði­þekk­ing sé innan beggja félaga og að áfram verð­i lögð áhersla á upp­lýs­inga­þjón­ustu sem byggir á nýj­ustu tækni. "Bæði fyr­ir­tækin eru upp­lýs­inga­fyr­ir­tæki þó þau starfi á ólíkum mörk­uð­um, kaupin auka fjöl­breytni í rekstri Já og gera starfs­um­hverfið áhuga­verð­ara og fjöl­breytt­ara."

Auglýsing

Einar Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Gallup, segir að salan sé stórt skref fram á við fyrir starf­semi og starfs­menn Gallup. "Um­hverfi fyr­ir­tækja er síbreyti­legt og ekki síst ef litið er til tækni og þró­unar sem átt hefur séð stað í upp­lýs­inga­geir­an­um. Með kaupum Já er Gallup orðið hluti af sterku fyr­ir­tæki með skýrar áherslur á rann­sóknir og upp­lýs­ing­ar. Það gerir okkur kleift að þjón­usta okkar við­skipta­vini enn betur og áfram munum við kapp­kosta við að veita þjóð­inni inn­sýn í mál líð­andi stund­ar."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None