Jeb Bush og Hillary Clinton með mest fé til að spila úr - Þessu hafa framboðin safnað

h_51820531-1.jpg
Auglýsing

Jeb Bush, fram­bjóð­andi í for­vali Repúblikana­flokks­ins til for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum 2016, hefur safnað mestu kosn­ingafé af öllum for­seta­fram­bjóð­end­um, alls um 114,4 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 15,4 millj­arða króna. Sá fram­bjóð­andi sem hefur safnað næst mestu er Hill­ary Rod­man Clint­on, sterkasti fram­bjóð­and­inn í for­vali Demókrata. Fram­boð hennar hefur safnað um 63 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 8,5 millj­arða króna.

Frestur flestra fram­boða til að skila gögnum um fjár­hags­mál rann út í gær, mið­viku­dag, en sér­stök nefnd á vegum rík­is­ins heldur utan um hversu mikla fjár­muna er aflað og hversu miklu er eytt. Nefndin mun allt fram að kosn­ingum kalla reglu­lega eftir gögnum um fjár­mál fram­boð­anna. NY Times er meðal þeirra fjöl­miðla sem fjalla um málið í dag með mynd­rænni fram­setn­ingu. List­inn hér að neðan er unn­inn úr umfjöllun banda­ríska blaðs­ins. Í þriðja dálki hafa upp­hæðir verið færðar í íslenskar krón­ur.





















































































































Fram­bjóð­andi Hefur safnað (í millj­ónum doll­ara) Hefur safnað (í millj­ónum króna)
Jeb Bush (R) 114,4 15.444
Hill­ary Clinton (D) 63,1 8.519
Ted Cruz (R) 52,3 7.061
Marco Rubio (R) 40,7 5.495
Rick Perry (R) 17,9 2.417
Bernie Sand­ers (D) 15,2 2.052
John Kasich (R) 11,5 1.553
Ben Car­son (R) 10,6 1.431
Mike Hucka­bee (R) 8 1.080
Rand Paul (R) 6,9 932


Jeb Bush, bróðir George Bush yngri, fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna, hefur fyrst og fremst safnað pen­ingum í gegnum utan­að­kom­andi hópa, svo­kall­aða PAC-hópa sem eru ekki á vegum Bush en styðja hann með miklum fjár­munum frá fyr­ir­tækj­um, þrýsti­hópum og sterk­efn­uðum ein­stak­ling­um. Alls hefur Jeb Bush fengið 103 millj­ónir doll­ara frá slíkum hóp­um. Aðrir fram­bjóð­endur sem hafa fengið stærstan hluta með sama hætti eru Repúblik­arnir Ted Cruz, Marco Rubio og Rick Perry. Þeir hafa safnað 38 millj­ón­um, 31,9 millj­ónum og 16,8 millj­ónum doll­ara með þessum hætti.

Hill­ary Clinton hefur fengið um 15,6 milj­ónir doll­ara frá PAC-hóp­um. Ef litið er til hversu mikið fram­boðin sjálf hafa safnað þá trónir Clinton efst, sam­tals hafa 47,5 millj­ónir doll­ara runnið beint til fram­boðs­ins. Á eftir henni kemur Bernie Sand­ers, sem einnig er í fram­boði fyrir Demókrata og hefur sótt á í skoð­ana­könn­unum und­an­farnar vik­ur. Sand­ers er á vinstri væng banda­rískra stjórn­mála og hefur meðal ann­ars talað gegn miklum áhrifum fjár­magns í stjórn­mála­bar­átt­unni í land­inu. Ríf­lega 80 pró­sent af þeim tveimur millj­örðum króna sem fram­boð hans hefur safn­að, hafa komið frá ein­stak­lingum sem gefa 200 doll­ara eða minna. Tvö hund­ruð doll­arar eru rúm­lega 25 þús­und krón­ur.

Auglýsing

Þá birtir NY Times einnig yfir­lit yfir hversu miklu fram­bjóð­end­urnir hafa eytt í bar­átt­unni til þessa, en yfir­litið nær til 30. júní 2015. Auð­kýf­ing­ur­inn umdeildi Don­ald Trump hefur eytt um 75 pró­sent af þeim 1,4 millj­ónum doll­ara ­sem kosn­inga­skrif­stofa hans hefur haft til umráða fram til þessa. Repúblikan­inn Ben Car­son hefur eytt 5,9 millj­ónum doll­ara, eða um 64 pró­sent af kosn­inga­fé, og Rick Santorum hefur eytt um 400 þús­und doll­ur­um. Það jafn­gildir um 62 pró­sentum af kosn­inga­sjóði hans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None