Jóhann Páll hættur á DV: „Sá hlær best sem á spilltustu vinina“

15003113329-3d9263f7fd-z.jpg
Auglýsing

Jóhann Páll Jóhanns­son, sem starfað hefur sem blaða­maður á DV und­an­farin miss­eri, hefur sagt upp störfum og til­kynnt yfir­mönnum sínum það. Jóhann Páll hlaut blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku snemma á síð­asta ári ásamt Jóni Bjarka Magn­ús­syni fyrir umfjöllun þeirra um leka­mál­ið. Atli Þór Fann­dal, sem starfað hefur á DV und­an­far­ið, var sagt upp störfum í gær, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Þeir bæt­ast í hóp þeirra sem voru reknir í kjöl­far yfir­töku nýrra eig­enda DV, undir for­ystu Björns Inga Hrafns­son­ar, í des­em­ber. Björn Ingi réð þrjá nýja rit­stjóra yfir DV, þau Egg­ert Skúla­son, Kol­brúnu Berg­þórs­dóttur og Hörð Ægis­son, sem verður við­skipta­rit­stjóri. Hall­grímur Thor­steins­son, sem hafði verið rit­stjóri DV frá því í sept­em­ber var sagt upp því starfi og mun ­leiða stefnu­mótum á sviði tal­málsút­varps á vegum Pressunn­ar.

Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrum blaðamaður á DV. Jóhann Páll Jóhanns­son, fyrrum blaða­maður á DV.

Jóhann Páll og Jón Bjarki gagn­rýndu Egg­ert Skúla­son harð­lega í Kast­ljósi nýverið.

Auglýsing

Í face­book­færslu sem Jóhann Páll birti rétt í þessu seg­ir:

Er hættur á DV og til­kynnti yfir­mönnum mínum það áðan. Ég get ekki hugsað mér að vinna á fjöl­miðli þar sem 

– fram­kvæmda­stjóri og eig­andi láta skjöl innan af rit­stjórn­inni ber­ast til auð­manns úti í bæ, sama auð­manns og keypti hlut í blað­inu til að kæfa óþægi­lega umfjöllun um sjálfan sig

– aðal­eig­andi blaðrar um launa­mál und­ir­manns síns við óvið­kom­andi aðila og reynir að etja starfs­mönnum hverjum gegn öðrum

– blaða­menn sem dirfast að spyrja spurn­inga um eign­ar­hald DV og ásetning nýrra eig­enda eru látnir fjúka.

Eflaust hlakkar í mörgum vegna svipt­ing­anna á DV. Einn af nýju eig­endum mið­ils­ins er Sig­urður G. Guð­jóns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður sem um ára­bil hefur amast við frétta­flutn­ingi blaðs­ins, t.d. af Vafn­ings­mál­inu og vald­níðslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, kallað frétta­stjóra DV furðu­legum nöfnum og gert honum upp ann­ar­legar hvat­ir. Auk þess hefur hann staðið í mála­rekstri gegn DV fyrir Bakka­var­ar­bræður og Björn Leifs­son. Þeir og aðrir skjól­stæð­ingar Sig­urðar – til að mynda sak­born­ingar í málum sér­staks sak­sókn­ara – geta skálað fyrir því að lög­mað­ur­inn sé kom­inn í eig­enda­hóp DV um leið og múr­inn milli rit­stjórnar og eig­enda er að hverfa.

Fleiri eiga hags­muna að gæta. Lengi hefur legið fyrir að öfl tengd Fram­sókn­ar­flokknum vilja kné­setja DV, enda hefur blaðið fjallað með krítískum hætti um mann­rétt­inda­mál, spill­ingu, útlend­inga­hat­ur, vald­níðslu og ljúg­andi ráða­menn.

Reynir Trausta­son lýsir því í nýút­kominni bók hvernig skugga­eig­andi DV, unnusti Vig­dísar Hauks­dótt­ur, kvart­aði undan leka­mál­inu og „dekri við hæl­is­leit­end­ur” og hvernig frétta­flutn­ingur af mál­efnum Fram­sókn­ar­flokks­ins olli titr­ingi í hlut­hafa­hópi blaðs­ins. Þá segir hann frá því þegar Guðni Ágústs­son og Óskar Bergs­son buð­ust til að útvega DV hlutafé í sama mund og sá fyrr­nefndi lýsti yfir áhyggjum af ímynd Sig­mundar Dav­íðs. Í októ­ber hafði svo Kjarn­inn eftir Ólafi M. Magn­ús­syni, fyrrum stjórn­ar­for­manni DV, að Hrólfur Ölv­is­son, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefði þrí­vegis fundað með sér og reynt að koma því til leiðar að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum eign­uð­ust hlut í DV.

Eftir að blaðið skipti um eig­endur í ágúst hefur gegnd­ar­laust nið­ur­rif átt sér stað. Nú eru skemmd­ar­verkin á loka­stigi. Björn Ingi Hrafns­son, áhrifa­maður í Fram­sókn­ar­flokkn­um, hefur eign­ast meiri­hluta í DV og gert vin sinn úr sama flokki, Egg­ert Skúla­son, að rit­stjóra. Síð­asta föstu­dag til­kynnti Egg­ert á frétta­fundi að blaða­mennska á borð við þá sem tíðk­að­ist í máli Hönnu Birnu yrði ekki liðin á hans vakt.

Fjár­sterk öfl í íslensku sam­fé­lagi hat­ast við frjálsa fjöl­miðlun og ham­ast gegn henni á öllum víg­stöðv­um. Yfir­takan á DV er ein ljótasta birt­ing­ar­mynd þess. Sá hlær best sem á spillt­ustu vin­ina."



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None