Jóhanna segir Bjarna Benediktsson sýna ótrúlega siðblindu

johannanyttr.jpg
Auglýsing

Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, segir að við­horf Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til styrkja sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja til Sjálf­stæð­is­flokks­ins vera „ótrú­leg sið­blinda“. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Jóhönnu á Face­book í kvöld þar sem hún tengir við frétt RÚV um málið. Bjarn­i ­segir ekk­ert vera að styrkjum fyr­ir­tækj­anna til flokks­ins.

johannasig (1)

Í frétt RÚV kom fram að fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi hafi styrkt stjórn­mála­flokk­ana um 16 millj­óna króna fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­ar. Níu af hverjum tíu krónum sem þau veittu í styrki fóru til Sjálf­stæði­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Auglýsing

Auk þess styrktu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins um rúm­lega sjö millj­ónir króna í próf­kjörum fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­ar.Fram­bjóð­endur ann­arra flokka fengu engan stuðn­ing frá fyr­ir­tækj­un­um.

Í fréttum RÚV var Bjarni spurður hvort þetta væri eðli­legt fyr­ir­komu­lag. Þar sagði Bjarni: „Það sem er eðli­legt er það að stjórn­mála­flokkar geta tekið við fram­lögum frá atvinnu­líf­inu upp að 400.000 krón­um. Það hefur eng­inn stjórn­mála­flokkur fengið meira en 400.000 krónur frá hverju og einu atvinnu­fyr­ir­tæki í land­inu. Þetta eru mjög strangar regl­ur, enda sést það ágæt­lega á fjár­málum stjórn­mála­flokk­anna, að þeir eru ekk­ert alltof vel sett­ir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með ágætis dreif­ingu í þeim stuðn­ingi sem hann hefur feng­ið. Og ég sé ekk­ert að því að hann njóti stuðn­ings frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum eins og öðrum“.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins vildi ekki tjá sig um málið þegar RÚV leit­að­ist eftir því.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None