Kanye West: Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til forseta Bandaríkjanna 2020

west.jpg
Auglýsing

Rapp­ar­inn Kanye West lauk ræðu sinni á Video Vangu­ar­d-verð­launa­há­tíð MTV-­sjón­varps­stöðv­ar­innar í gær á því að til­kynna um vænt­an­legt fram­boð sitt til emb­ættis for­seta Banda­ríkj­anna árið 2020. Sam­kvæmt frétt Time um málið eru skiptar skoð­anir um hvort West hafi verið alvara með yfir­lýs­ing­unni eða hvort hann hafi verið að grín­ast.

West hefur verið ansi dug­legur við að koma sér í sviðs­ljósið á und­an­förnum árum vegna nei­kvæðrar fram­komu. Fræg­ast var lík­ast til atvikið þegar hann rauk upp á svið á sömu hátíð árið 2009 eftir að Taylor Swift fékk verð­laun fyrir að hafa búið til besta tón­list­ar­mynd­band kvenn­lista­manns það árið. West þreif af henni míkró­fón­inn og lýsti því yfir að Beyoncé hefði átt að vinna þau.

Þau vatna­skil urðu nú, sex árum síð­ar, að Swift afhenti West heið­ursverð­laun hátíð­ar­innar sem kennd eru við Mich­ael Jackson. Swift hélt stutta ræðu þar sem hún tal­aði fal­lega um West og það sem hann hefði áorkað sem lista­maður og í tísku­heim­in­um. Sagði hún West hafa átt "einn stór­kost­leg­asta feril sög­unn­ar".

Auglýsing

Í ræðu sinni fór West yfir skoð­anir fólks á honum og sagði frá því að oft kom­ist fólk að þeirri nið­ur­stöðu að hann sé ekki jafn slæmur og af er látið eftir að hafa talað við hann. West ræddi einnig bar­áttu sína fyrir hag ann­arra lista­manna og hvernig hans kyn­slóð ætti að kenna börn­unum sínum að trúa á sig sjálf. Síðan sagði West: "Þetta snýst um hug­myndir bróðir (e. bro)! Nýjar hug­mynd­ir! Fólk með hug­mynd­ir, fólk sem trúir á sann­leik­ann. Og já, eins og flest ykkar hafa lík­ast til giskað á, þá hef ég ákveðið að bjóða mig fram til for­seta árið 2020".

West er giftur raun­veru­leika­stjörn­unni Kim Kar­dashi­an. Ef honum er alvara með fram­boði sínu, og ef hann ynni, þá yrði Kar­dashian for­seta­frú Banda­ríkj­anna.

Hægt er að horfa á brot úr ræðum Swift og West á vef The Guar­di­an. 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None