Kári: Kjósendur líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn drukknir en allsgáðir

kari_2_0.jpg
Auglýsing

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, segir að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, vilji áfengi í versl­anir af því það leiði til þess að fleiri muni kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ef áfeng­is­sala sé gefin frjáls þá drekki lands­menn meira. Bjarni viti að drykkja geti svift menn ráði og rænu, og því sé lík­legra að menn kjósi Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þetta segir Kári í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

„Hann veit hins vegar að ef því verður komið í venju­legar versl­anir drekka lands­menn meira. Hann veit líka að áfeng­is­drykkja getur svift menn ráði, rænu og annarri eðli­legri starf­semi heil­ans og því sé lík­legra að menn kjósi Sjálf­stæð­is­flokk­inn þegar þeir eru drukknir en alls­gáð­ir. Eftir að hlusta á mál­flutn­ing hans í þess­ari ræðu er auð­velt að vera honum sam­mála. Eina vanda­málið sem ég sé við þessa atkvæða­smölun for­manns­ins er að kjör­staðir eru almanna­færi.“

Grein Kára, sem ber yfir­skrift­ina „Hvað meinar mað­ur­inn með frelsi?“. Kári vísar í stefnu­ræðu Bjarna frá setn­ingu Alþing­is, þ.e. þann hluta ræðu Bjarna sem fjall­aði um að áfeng­is­sala skyldi vera gefin frjáls.

Auglýsing

„En því ber ekki að neita að orðið frelsi er áferð­ar­fal­legt og þrútið af göf­ugum til­finn­ingum sem höfða til okkar allra. Það er hins vegar gjarnan ágrein­ingur um það hvar frelsið endar og þykjusta og óheftur bjána­skapur byrj­a,“ skrifar Kári. Hann rifjar upp ummæli Bjarna úr ræð­unni:

„„Má ég nefna það hér hvort við treystum fólk­inu í land­inu til að sækja áfengi í venju­legar versl­anir eða ekki? Í mínum huga er það aug­ljóst mál. Það eru röng skila­boð frá þing­inu að treysta ekki fólk­inu til þess að kaupa áfengi í venju­legum versl­un­um, að það þurfi opin­bera starfs­menn til þess að afhenda slíka vöru yfir búð­ar­borð­ið. Það eru röng skila­boð,“ sagði Bjarni.

Kári segir það liggja fyrir að með auknu aðgengi áfengis þá auk­ist neysl­an. Spurn­ingin hvort selja eigi áfengi í versl­unum snú­ist því um hvort við viljum að fólkið í land­inu neyti meira eða minna áfeng­is. „Alkó­hól­ismi er einn af alvar­leg­ustu og algeng­ustu sjúk­dómum í okkar sam­fé­lagi og ekki á það bæt­andi. Það er því lít­ill krókur að rölta í sér­verslun til þess að forð­ast þá keldu sem aukin áfeng­is­neysla lands­manna væri.

Síðan er það allt önnur spurn­ing og gömul hvernig Alþingi treysti fólk­inu í land­inu til þess að umgang­ast þessa vöru sem for­mað­ur­inn vill nú flytja inn í venju­legar versl­an­ir. Það ætti þó að vera honum ljóst að þegar kemur að því að para saman áfengi og fólkið í land­inu hefur afstaða Alþingis aldrei markast af trausti og það hefur til dæmis með lögum skert til muna frelsi þeirra sem eru búnir að neyta þess í ein­hverju magni og eru undir þeim áhrifum sem eftir er sóst með neysl­unni. Þeim er bannað að aka bif­reið, fljúga flug­vél, stjórna bátum og vera á almanna­færi. Það er engin önnur vara sem er lög­lega seld í land­inu sem er með þeim ósköpum gerð að lög­gjaf­inn hafi séð ástæðu til þess að skipta sér sér­stak­lega af gjörðum þeirra sem hafa neytt henn­ar,“ skrifar Kári.

Hann seg­ist í litlum vafa um að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, viti þetta allt saman og skilji. „Ég er í litlum vafa um að for­mað­ur­inn veit þetta allt saman og skilur en vonar að ef hann komi áfengi í venju­legar versl­anir leiði það til þess að fleiri muni kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem þessa dag­ana er illa rúinn fylgi. Ekki getur það verið vegna þess að hann haldi að hug­myndin um áfengi í venju­legar versl­anir sé vin­sæl vegna þess að skoð­ana­kann­anir benda til þess að meiri hluti lands­manna vilji að áfengið haldi sig heima hjá sér. Hann veit hins vegar að ef því verður komið í venju­legar versl­anir drekka lands­menn meira. Hann veit líka að áfeng­is­drykkja getur svift menn ráði, rænu og annarri eðli­legri starf­semi heil­ans og því sé lík­legra að menn kjósi Sjálf­stæð­is­flokk­inn þegar þeir eru drukknir en alls­gáð­ir. Eftir að hlusta á mál­flutn­ing hans í þess­ari ræðu er auð­velt að vera honum sammála. Eina vanda­málið sem ég sé við þessa atkvæða­smölun for­manns­ins er að kjör­staðir eru almanna­færi.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None