Katrín veltir fyrir sér kúvendingu VG í stjórnarskrármálum

Formaður Stjórnarskrárfélagsins segir að kannski sé skárra að Vinstri græn séu „loksins heiðarleg“ með afstöðu til nýju stjórnarskrárinnar frekar en að „þykjast vilja virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar til að næla sér í atkvæði fyrir kosningar“.

Katrín Oddsdóttir
Katrín Oddsdóttir
Auglýsing

Katrín Odds­dóttir for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins bendir á í færslu á Face­book í dag að stefnu­breyt­ing hafi orðið hjá Vinstri grænum varð­andi nýju stjórn­ar­skrána.

Vísar hún í ályktun lands­fundar VG sem birt var í gær. „En í 30. máls­grein má síðan finna nýja stefnu flokks­ins um stjórn­ar­skránna. Þar seg­ir: „Halda þarf áfram end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­inn­ar. Löngu er tíma­bært að ný ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eign og umhverf­is- og nátt­úru­vernd hljóti afgreiðslu Alþingis en einnig þarf að ráð­ast í tíma­bærar breyt­ingar á öðrum köfl­um. End­ur­skoða þarf mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar meðal ann­ars með hlið­sjón af rétt­inum til mennt­un­ar, heil­brigðis og lífs­við­ur­vær­is.”,“ skrifar hún.

Katrín ber saman þessa stefnu við stefnu flokks­ins í sama máli árið 2017 en þá var nýja stjórn­ar­skráin í stefn­unni. „Ljúkum þeirri vinnu sem hófst með þjóð­fund­inum 2010 og klárum nýja stjórn­ar­skrá sem byggir á til­lögum Stjórn­laga­ráðs,” sagði í stefn­unni frá árinu 2017.

Auglýsing

Skárra að „þau séu loks­ins heið­ar­leg“

Veltir Katrín fyrir sér þess­ari kúvend­ingu. „Eftir þetta kjör­tíma­bil þyrfti það svo sem ekki að koma neinum á óvart að VG vilji ekki nýju stjórn­ar­skrána og kannski er skárra að þau séu loks­ins heið­ar­leg með þetta frekar en þykj­ast vilja virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar til að næla sér í atkvæði fyrir kosn­ing­ar.“

Katrín seg­ist bera virð­ingu fyrir nöfnu sinni, Katrínu Jak­obs­dóttur for­manni VG. „Í mínum huga er þó ljóst að ef kjós­andi vill leggja áherslu á að Alþingi virði nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar frá 2012 um að leggja nýju stjórn­ar­skrána til grund­vallar sem stjórn­ar­skrá Íslands, ætti hann alls ekki að ráð­stafa sínu atkvæði til VG.“

LAND TÆKI­FÆRANNA? Nú keyrir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á nýju (og ögn banda­rísku) kjör­orði sem er “Land tæki­færanna”....

Posted by Katrín Odds­dóttir on Sunday, Aug­ust 29, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent