Kemur til greina að stytta sóttkví hjá þríbólusettum

Stytting á sóttkví hjá þríbólusettum einstaklingum er til skoðunar að sögn sóttvarnalæknis. Útfærslan verður kynnt á næstu dögum. Bólusetning barna hefst í næstu viku. Samþykki beggja forsjáraðila þarf svo barn verði bólusett.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að komi til greina að stytta sóttkví þróbólusettra einstaklinga.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að komi til greina að stytta sóttkví þróbólusettra einstaklinga.
Auglýsing

Vegna mik­illar útbreiðslu smita í sam­fé­lag­inu þessa stund­ina og þess mikla fjölda sem þarf að fara í sótt­kví á hverjum degi er það til skoð­unar að stytta sótt­kví hjá þrí­bólu­settum ein­stak­ling­um. Þetta kom fram í máli Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í morg­un. Útfærslan verður kynnt á næstu dög­um.

Sótt­kví, það er þegar ein­stak­lingur hefur mögu­lega smit­ast af COVID-19 en er ekki með ein­kenni, er fimm dagar frá útsetn­ing­ar­degi og lýkur þegar við­kom­andi fær nei­kvætt PCR-­próf. Sytt­ing á sótt­kví þrí­bólu­settra gæti verið upp­hafið að ýmsum til­slök­unum í sótt­varna­tilliti að mati Þór­ólfs, en með stytt­ing­unni er einnig verið að koma til móts við atvinnu­líf­ið.

Auglýsing

Yfir 16 þús­und í ein­angrun eða sótt­kví

1.238 smit greindust í gær, þar af voru 1.074 smit inn­an­lands og 164 á landa­mær­un­um. Nýgengi inn­an­lands­smita er nú 3.037,4 og hefur aldrei verið hærra. 7.525 eru í sótt­kví og 9.125 í ein­angr­un.

30 sjúk­lingar liggja á Land­spít­ala með COVID-19 og er með­al­aldur þeirra 56 ár. Átta eru á gjör­gæslu, fimm þeirra í önd­un­ar­vél. Sex af átta sem eru á gjör­gæslu eru óbólu­sett. Karl­maður á sjö­tugs­aldri lést af völdum COVID-19 á Land­spít­ala í gær. Hann var óbólu­sett­ur. Alls hafa 39 látið lífið af völdum COVID-19 frá því að far­ald­ur­inn braust út í febr­úar 2020.

Börn aðeins bólu­sett ef báðir for­sjárað­ilar eru sam­þykkir

Þórólfur segir óljóst hvort toppnum í smitum sé náð og næstu dagar munu skera úr um það. Sem stendur er ómíkron-af­brigðið algeng­ara hjá yngri full­orðnum en delta-af­brigðið hjá börn­um.

Bólu­setn­ing barna 5-11 ára hefst í næstu viku og munu for­eldrar eða for­svars­menn barna fá senda til­kynn­ingu í lok vik­unnar um að börnum á þessum aldri standi bólu­setn­ing til boða. Fram kom í máli Kamillu Sig­ríðar Jós­efs­dótt­ur, læknis og verk­efna­stjóra hjá emb­ætti land­lækn­is, að svara verði til­kynn­ing­unni svo barn verði bólu­sett. Ef for­svars­menn eru tveir og með mis­mun­andi afstöðu verður barn ekki bólu­sett.

Þórólfur hvetur fólk til að mæta í bólu­setn­ingar og hvetur fólk sér­stak­lega til að þiggja örv­un­ar­skammt­inn. Þá hvetur hann for­eldra til að þiggja bólu­setn­ingu fyrir börn sín.

„Við þurfum áfram að berj­ast gegn COVID-19 til að vernda líf og heilsu lands­manna en hversu lengi sú bar­átta mun standa er ekki gott að segja til um á þess­ari stund­u,“ sagði Þórolf­ur. Hann seg­ist þó sann­færður um að á næstu vikum og mán­uðum tak­ist að mynda sam­fé­lags­legt ónæmi svo hægt verði að snúa aftur til fyrra lífs. Það sé hins vegar óljóst hvort það marki enda­lok far­ald­urs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent