Kínverjar skikkuðu fyrirtæki og starfsmenn til að kaupa bréf

hlutabref_kina.jpg
Auglýsing

Eftir að hluta­bréfa­mark­aðir í Kína hrundu í gær skikk­uðu stjórn­völd þar í landi skráð fyr­ir­tæki, fyr­ir­tæki í rík­i­s­eigu og starfs­menn þeirra að kaupa hluta­bréf. Mark­aðir þar í landi eru nú aftur komnir í jafn­vægi. Þegar mark­aðir lok­uðu í Kína í dag voru helstu vísi­tölur jákvæðar um þrjú til sex pró­sent.

Fjöl­mörg skráð fyr­ir­tæki vor­u þó ekki í við­skiptum á mark­aði í dag en talið er að flestir hafi dregið við­skipti sín til baka til þess að koma í veg fyrir verð­fall bréfa sinna. Quartz greinir frá þessu.

Auglýsing

Stjórn­völd í Kína hafa und­an­farna daga ráð­ist í aðgerðir til að glæða hluta­bréfa­mark­aði þar sem verð hluta­bréfa hef­ur ­fallið um 30 pró­sent á síð­ustu þremur vik­um. Í byrjun júní hafði hluta­bréfa­verð hækkað um 150 pró­sent á einu ári og hafði aldrei verið jafn hátt í sjö ár. Þar af nemur lækk­unin 12 pró­sentum á síð­ustu viku. Verð­lækkun upp á þrjá­tíu pró­sent jafn­gildir öllu fram­leiðslu­virði Bret­lands á síð­asta ári.

Kjarn­inn fjall­aði um hluta­bréfa­krís­una í Kína þegar verð­fallið varð í gær. Þá var því velt upp að sumir telja krís­una vera jafn­vel alvar­legri en gríska efna­hag­skrísan vegna þess hversu stór hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í Kína er.

Yfir­maður í skráðu kín­versku fyr­ir­tæki lét hafa eftir sér að fyr­ir­tæki hans hafi fengið „beina skip­un“ frá Verð­bréfa­eft­ir­liti Kína um að fram­fylgja fimm skref­um. Þau voru að láta stóra hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins kaupa fleiri bréf, kaupa eigin bréf, láta yfir­menn og milli­stjórn­endur kaupa hluta­bréf, inn­leiða kaup­hvata fyrir starfs­menn og kynna leiðir fyrir starfs­menn til að eign­ast hluta­bréf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None