Kínverskur efnahagur sýnir enn skýrari veikleikamerki

stock.jpg
Auglýsing

Kín­verska hag­kerfið sýndi hag­vöxt upp á tæp­lega sjö pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, sem er umtals­vert minna en vonir stóðu til um. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2009, þegar fjár­málakreppan á heims­mörk­uðum hafði afger­andi áhrif á gang mála, sem hag­vöxtur fer niður fyrir sjö pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi í Kína, segir á vef Wall Street Journal.

Þessar nýj­ustu upp­lýs­ingar um stöðu mála í Kína eru taldar vera vís­bend­ing um að ­gangur efna­hags­mála í heim­inum  sé við­kvæmur og geti farið versn­andi á næst­unni.

Hag­vöxt­ur­inn mæld­ist um 6,8 pró­sent, en mark­mið stjórn­valda er að halda hag­vext­inum í kringum sjö pró­sent. Vegna þess hve stærð­irnar eru miklar í þessu fjöl­menn­asta ríki heims­ins, með 1,4 millj­arða íbúa, þá telst það mikið frá­vik ef hag­vöxtur er 0,2 pró­sentu­stigum minni en ráð var fyrir gert.

Auglýsing

Efa­semdir hafa hins vegar verið uppi um það í Banda­ríkj­unum sér­stak­lega, að grein­ingar og mæl­ingar stjórn­valda í Kína, séu nægi­lega nákvæm­ar.

Hag­vöxtur mæld­ist um sjö pró­sent í Kína á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­kvæmt opin­berum hag­tölum stjórn­valda. Skoð­ana­könnun á meðal 64 hag­fræð­inga sem gegna ábyrgð­ar­stöðum í Banda­ríkj­unum sýndi að 96 pró­sent aðspurðra voru á því að þetta væru ekki réttar töl­ur. Hag­vöxt­ur­inn væri mun minni, og mun­aði lík­lega á bil­inu eins til tveggja pró­sentu­stiga. Þegar Kína er ann­ars vegar þá er hvert pró­sentu­stig í hag­vexti gríð­ar­lega mikil hag­stærð, svo það er óhætt að segja að þessi hag­fræð­ingar treysti ekki stjórn­völdum í Kína.



Nýj­ustu opin­beru hag­tölur í Kína, sem hafa ekki verið véfengdar með jafn afger­andi hætti og hag­vaxt­ar­töl­urn­ar, sýna aug­ljósa breyt­ingu í kín­verska hag­kerf­inu, en útflutn­ingur hefur dreg­ist 5,5 pró­sent á þessu ári miðað við árið á und­an, og inn­flutn­ingur um fjórtán pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None