Kjarninn mælir með... Lög gegn útlitsdýrkun og magnaðar myndir

france.jpeg
Auglýsing

Við lifum sögu­lega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlend­is. Rit­stjórn Kjarn­ans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjall­anir sem að mati rit­stjórnar eru vand­að­ar, áhuga­verðar og skemmti­leg­ar, hver með sínum ólíka hætti.

Skelf­ingin í Naíróbí – The New York Times



Hryðju­verka­sam­tökin Al Shabab, sem eiga rætur í Sómalíu og hafa tengsl við hin alræmdu Al-Kaída, réð­ust á Garissa Uni­versity Col­lege háskól­ann í Naíróbí í Kenýa, og drápu að minnsta kosti 143 nem­endur við skól­ann. Umfjöllun New York Times gefur góða mynd af þessum skelfi­lega atburði, en svo virð­ist sem víga­menn­irnir hafi hand­valið nem­endur úr hópnum sem voru múslimar og leyft þeim að kom­ast und­an.

Hér má síðan sjá umfjöllun Quartz þar sem því er velt upp, að stjórn­völd í Kenýa hafi hugs­an­lega sofið á verð­inum og gert lítið úr hætt­unni sem staf­aði af Al Shabab til þess að vernda ferða­þjón­ust­una í land­inu.

https://www.youtu­be.com/watch?v=-zsn2w-Cfd4

Auglýsing

Áhuga­verðar umfjall­anir um skelfi­legan atburð.

Ótrú­legar myndir – Chongqing Express



Ljós­mynd­ar­inn Tim Franco, sem fæddur er í París en hefur sinnt alþjóð­legum ljós­mynda­verk­efnum á sínum starfs­ferli, dvaldi í borg­inni Chongqing í Kína og mynd­aði þar bygg­ing­ar, mann­líf og skipu­lag fyrir Chongqing Express, fjöl­miðil í borg­inni. Vef­mið­ill­inn frá­bæri Quartz tók mynd­irnar síðan upp á sína arma, og gerði umfjöllun um þær. Mynd­irnar eru slá­andi og glæsi­legar í senn. Mynd­irnar sýna dökkar hliðar þeirrar ógn­ar­hröðu upp­bygg­ingar sem átt hefur sér stað í borg­inni.

Þetta er gott dæmi um hversu stór­kost­legt ljós­mynda­formið getur ver­ið. Ekk­ert kemur í stað­inn fyrir góðar mynd­ir.

Skál! – Quartz.



Eitt af því sem hefur blómstrað eftir hrunið á fjár­mála­mörk­uð­um, er útflutn­ingur á skosku vískíi til Banda­ríkj­anna. Árið 2008 voru 280 millj­ónir lítra af vískí fluttir frá Skotlandi til Banda­ríkj­anna, en árið 2011 var talan komin upp í 360 millj­ónir lítra. Nú er aftur aðeins farið að halla undan fæti hjá Skot­unum, en ástæðan er fyrst og síð­ast harðn­andi sam­keppni. Banda­rískt vískí, eins og Jack Dani­els, nýtur vax­andi vin­sælda. Banda­ríkin er næst mik­il­væg­asti mark­að­ur­inn í heim­inum fyrir skoskt vískí, á eftir Frakk­landi.

Ekki kannski hefð­bundn­asta útflutn­ings­varan til þess að fjalla um, en hún skiptir miklu máli fyrir efna­hags­lífið í Skotlandi.

Frakkar gegn útlits­dýrk­un­inni – The Verge.



Frakk­land hefur alltaf verið vett­vangur hátískunn­ar, þar sem straum­arnir mót­ast í þeim risa­vaxna bransa. Eitt af því sem fylgt hefur hátísk­unni er mikil umræða um útlits­dýrk­un­ina, og hvernig hún birt­ist í hönnun og ekki síður aug­lýs­ing­um. Nú hefur þingið í Frakk­landi sam­þykkt lög sem miða að því að vinna gegn útlits­dýrkun og anórexíu, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Frakk­landi eru um 30 til 40 þús­und konur í land­inu, sem þjást af a­nórex­íu. Í lög­unum er meðal ann­ars heim­ild til þess að refsa þeim sem ráða konur til mód­el­starfa, þar sem óeðli­legar útlits­kröfur eru gerðar til kvenna.

Áhuga­verð umfjöll­un, sem sýnir að það er ýmis­legt hægt að gera til að sporna gegn útlits­dýrk­un­inni sem birt­ist ekki síst í aug­lýs­ingum fata­fram­leið­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None