Komst að því hvað hann átti í Kaupþingi þegar hann las skýrslu Rannsóknarnefndar

kaupthing-lux.jpg
Auglýsing

Egill Ágústs­son, for­stjóri Íslensk Amer­íska, segir að syst­ur­sonur konu hans, sem starf­aði hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg hafi haft sam­band við hann að beiðni Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, þá for­stjóra Kaup­þings, og Magn­úsar Guð­munds­son­ar, þá for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, til að fá Egil til að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi í upp­hafi árs 2008. Hann hafi á þeim tíma ekki átt nein bréf í bank­an­um. Eftir að Egill hafi sagst ekki hafa áhuga á að kaupa nein hluta­bréf sagði syst­ur­sonur konu hans, Einar Bjarni Sig­urðs­son sem var líka við­skipta­stjóri Egils, að hann gæti fengið hluta­bréfið ein­göngu með veði í bréf­unum sjálfum og að hann þyrfti ekki að leggja fram neinar trygg­ing­ar. Engin áhætta átti að vera fyrir Egil af þessum við­skipt­um. Þetta kom fram í vitna­leiðslum yfir Agli í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings í morg­un. Frá þessu er greint á Vísi.­is.

Í kjöl­farið hafi félag Egils keypt hluti í Kaup­þingi fyrir alls 13,4 millj­arða króna fram að banka­hruni, allt fyrir lánsfé úr Kaup­þingi. Egill segir að þorri þeirra kaupa hafi átt sér stað án þess að haft væri sam­band við hann. Bréfin hafi ein­fald­lega verið keypt án hans vit­neskju.

Þegar sak­sókn­ari spurði Egil um hvenær hann hefði kom­ist að því að félag hans, sem hét Desulo Tra­d­ing, hefði átt í þessum miklu við­skiptum með hluta­bréf í Kaup­þingi sagði Egill: „Þegar ég las Rann­sókn­ar­skýrslu Alþing­is.”

Auglýsing

Alls eru níu fyrrum starfs­menn Kaup­þings ákærðir í mál­inu. Þeirra á meðal eru Hreiðar Már, Magnús og Sig­urður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings. Ákærðu er gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans.

Fékk 13,4 millj­arða króna að láni



For­saga þessa anga máls­ins, sem var til umfjöll­unar í morg­un, er sú að Kaup­þing hafði sam­band við Egil árið 2008 og bað hann um að eiga eign­ar­laust félag sem kall­að­ist Desulo Tra­d­ing og var skráð á Kýp­ur. Frá því í maí 2008 og fram að banka­hruni lán­aði Kaup­þing þessu eign­ar­lausa félagi 13,4 millj­arða króna til að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi, mest megnis af Kaup­þingi. Síð­asta lán­veit­ingin til þessa var fram­kvæmd 25. sept­em­ber 2008, sama dag og per­sónu­legar ábyrgðir starfs­manna Kaup­þings á lánum til hluta­bréfa­kaupa voru felldar nið­ur­,og örfáum dögum áður en bank­inn féll. Hún var upp á rúma fjóra millj­arða króna.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kemur auk þess fram að Desu­lo, sem átti þá minna en ekk­ert, þar sem hluta­bréfin í Kaup­þingi höfðu lækkað tölu­vert í verði, hafi gert fram­virkan kaup­samn­ing um hluta­bréf í finnska félag­inu Sampo í sept­em­ber 2008 upp á tæp­lega 30 millj­arða króna. Sampo var í eigu Exista, stærsta eig­anda Kaup­þings.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None