Kortaþjónusta fékk 6 milljarða - markmiðið að gera betri kort

mapbox_reykjavik.jpg
Auglýsing

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Mapbox lok­aði á dög­unum B-fjár­mögn­unum upp á 52,55 milljón doll­ara, eða um 7 millj­arða íslenskra króna. Mapbox er korta­fyr­ir­tæki sem fram­leiðir korta­vinnslu­for­rit og heldur utan um korta­grunna sem allir hafa aðgang að. Þannig vill Mapbox verða „Wikipedia heimskorts­ins“ á vefn­um.

Nú þegar hefur Mapbox tek­ist að trufla mark­að­inn nógu mikið til að láta risa eins og Google hreyfa sig og setja eitt­hvað alvöru fjár­magn í korta­þjón­ustu sína. Um þessar mundir er nefni­lega óvíst hvaða fyr­ir­tæki muni hafa vinn­ing­inn meðal app­fyr­ir­tækja. Einnig er óvíst hver eigi eftir að kaupa korta­þjón­ustu Nokia, Here.

Stór öpp og vef­síður á borð við Four­squ­are, Pinter­est og Mapquest nota þegar kort frá Mapbox sem segir fjár­magnið sem fyr­ir­tækið fékk á dög­unum vera stærstu fjár­fest­ingu í sögu korta­gerð­ar. Meðal fjár­festa í ann­ari fjár­mögn­un­ar­um­ferð voru Foundry Group (sem fyrir áttu stóran hlut í Mapbox), DBL Partners, Thrive Capi­tal, Pritzker Group, fyrr­ver­andi for­seti Gold­man Sachs Jon Win­kel­ried og Promus Ventures.

Auglýsing

mapbox_thorsmork Kjarn­inn hefur und­an­farið reynt hug­bún­að­inn frá Mapbox hér á Íslandi. Íslands­kortið er nokkuð full­kom­ið; helst­u ­kenni­leiti eru merkt inn og hnit helstu þjóð­vega nokkuð nákvæm, sér­stak­lega í þétt­býl­i.

 

Síðan fyr­ir­tækið var stofnað árið 2010 í Was­hington DC hefur mark­miðið verið ein­falt en erfitt: að gera betri kort. Fyr­ir­tækið var fyrstu árin rekið fyrir lítið stofnfé en árið 2013 fékkst tíu milljón doll­ara fjár­fest­ing.

Vef­kort eru kannski ekki ný af nál­inni. Google hefur þróað vin­sæl kort af öllum heim­inum í rétt rúm­lega tíu ár og stað­bundn­ari þjón­ustur bjóða upp á góð kort fyrir nærum­hverfi sitt, eins og Já.is. Mapbox hefur ekki í hyggju að keppa við þessa þjón­usturisa og mark­að­setja kortin sín beint til almenn­ings. Heldur er mark­miðið að búa til umhverfi fyrir korta­smiði sem borga svo gjald eftir magni og umfangi korta­gagn­anna sem þeir skapa.

Eric Gund­er­sen, fram­kvæmda­stjóri Mapbox, seg­ist alls ekki vilja kalla fyr­ir­tækið korta­þjón­ustu heldur skapi það tæki og tól svo korta­gerð­ar­fólk geti notað gagna­grunn­inn og bætt við hann. Fólk getur svo notað kortin sín þar sem það vill.

Jafn­vel þó vöxtur Mapbox hafi und­an­farin tvö ár verið hljóður hefur hann orðið á mik­il­vægum tíma í þróun vef­korta og vef­korta­þjón­ustu. Snjall­síma­eign og teng­ing við far­síma­net orðin mjög góð og almenn sem veitir fyr­ir­tækjum eins og Google og Mapbox tæki­færi til að sækja fram á korta­mark­aði. Þá er skemmst að minn­ast þess að nýjar teg­undir tækja á borð við snjallúr og snjall­bíla eru eða eru að fara að ryðja sér til rúms á mark­aði.

Það gæti komið les­endum á óvart en lang flest öpp og flestar vef­síður sem við heim­sækjum stað­setja not­endur á ein­hvern hátt á korti, jafn­vel þó mark­miðið sé ekki að rata milli staða í Google Maps eða hefta myndir á kort í Instagram. Eft­ir­spurnin eftir vef­lægum kortum er því mikil og eykst gríð­ar­lega hratt.

Næstu skref hjá Mapbox, eftir þessa hluta­fjár­aukn­ingu, er að ráða nýtt fólk og stækka útibú sín í San Francisco og á Ind­landi. Fyr­ir­tækið er jafn­framt mjög fram­ar­lega í útfærlsu gervi­hnatta­mynda í korta­grunni sínum en með sér­stakri tækni eru mörg­hund­ruð myndir unnar á dag til þess að heim­ur­inn okkar líti betur út.

https://yout­u.be/mI­o26cd­FabE

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None