Kostar 51 milljón að leigja en 26 milljónir að eignast fasteign

Bjarni-Ben.png
Auglýsing

Hvernig á ungt fólk að eign­ast fast­eign í dag? Eru öll sund lok­uð? Hvaða þýð­ingu hefur það að stunda reglu­legan sparn­að? Að þessu spurði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í erindi sínu á Popup ráð­stefnu í Háskól­anum í Reykja­vík í til­efni af Alþjóð­legri fjár­mála­læs­isviku sem haldin var í síð­ustu viku.

Bjarni tók dæmi um nýbak­aða for­eldra sem leggja fyrir þrjú þús­und krónur á mán­uði þar til barnið verður 18 ára gam­alt. Á þessum tíma, miðað við fjög­urra pró­senta, óverð­tryggða vexti, þá hefur um ein milljón safn­ast þegar barnið verður 18 ára gam­alt. Ef for­eldr­arnir leggja fimm þús­und krónur fyrir á mán­uði þá nemur stærð sjóðs­ins um 1,5 millj­ónum króna við 18 ára afmæl­ið.

Auglýsing


„Ef sá 18 ára heldur áfram að spara þá, er upp­hæðin rúm­legra 1,5 millj­ónir við 25 ára ald­ur, séu þrjú þús­und krónur lagðar fyrir á mán­uði, eða 2,5 millj­ónir ef lagðar eru 5.000 krónur á mán­uði. Það er ekki slæmt að eiga að loknu námi,“ sagði Bjarni og tók fram að hér væri ekki tekið til­lit til pen­inga sem ung­menni eign­ast t.d. við ferm­ingu, afmæli eða fá frá ömmu og afa. „Margt stórt gerir eitt stórt og það borgar sig að spara. Þessar tölur geta skipt máli og haft áhrif á hvort ungt fólk hafi raun­hæfan mögu­leika á að brúa þetta bil sem vantar þegar lán eru tek­in,“ sagði Bjarni.

Að leigja eða eiga, það er spurn­ingin

Fjár­mála­ráð­herra tók dæmi af 18,5 millj­óna króna, tveggja her­bergja íbúð sem var aug­lýst til sölu á fast­eigna­vef, og hver mun­ur­inn gæti verið á því kaupa íbúð­ina og leigja hana. „Fyrsta greiðsla af óverð­tryggðu láni hljóðar upp á 125 þús­und á mán­uði en 100 þús­und krónur ef lánið er verð­tryggt. Ætla má að leigu­verð íbúð­ar­innar sé um 150 þús­und krónur á mán­uði.



Spólum 25 ár fram í tím­ann. Þá er sá sem tók óverð­tryggt lán að greiða síð­ustu greiðslu af lán­inu upp á 50 þús­und krónur og sá sem tók verð­tryggt lán að borga 63 þús­und. Ein­stak­ling­ur­inn sem leigir hefur alls greitt 51 milljón króna í leigu á þessum tíma, og hann á enga fast­eign. Sá sem tók óverð­tryggt lán hefur greitt 26 millj­ónir í vexti og afborg­an­ir, og sá sem tók verð­tryggt lán hefur greitt 25 millj­ónir króna,“ sagði Bjarni. Í dæm­inu hans er miðað við að verð­bólga sé eitt pró­sent. „En það er sú verð­bólga sem við höfum haft und­an­farið og ætlum að hafa í fram­tíð­inn­i,“ sagði Bjarni og upp­skar hlátur fund­ar­gesta, en verð­bólga hefur aldrei hald­ist svo lág yfir lengra tíma­bil.



For­send­urnar breyti þó ekki grund­vall­ar­þátt­unum í dæm­inu, sagði Bjarni. Það sé afar gott að spara fyrir íbúða­kaupum og mik­il­vægt sé að fólk geri sér grein fyrir hvað það þýði að vera á leigu­mark­að­in­um. „Sjálfur er ég mik­ill tals­maður sér­eigna­stefn­unnar og trúi því að til lengri tíma sé hún betri val­kost­ur, þótt leigu­mark­aður þurfi sann­ar­lega að vera til staðar og að hann þurfi að efla.“



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None