Kostnaður við greiðslur til stjórnarmanna Icelandair Group jókst um þriðjung milli ára

Icelandair Group tapaði 13,7 milljörðum króna í fyrra og hefur alls tapað næstum 80 milljörðum króna á fjórum árum. Kostnaður við stjórn félagsins jókst hinsvegar um 11,3 milljónir króna á síðasta ári.

Icelandair Group hefur gengið í gegnum mikinn ólgusjó á síðustu árum.
Icelandair Group hefur gengið í gegnum mikinn ólgusjó á síðustu árum.
Auglýsing

Heild­ar­kostn­aður við laun og hlunn­indi stjórnar Icelandair Group í fyrra var tæp­lega 317 þús­und Banda­ríkja­dal­ir, eða 41,3 millj­ónir króna miðað við árs­loka­gengi 2021. Til við­bótar fengu stjórn­ar­menn greiðslur upp á rúm­lega 37 þús­und Banda­ríkja­dali, um 4,8 millj­ónir króna, í líf­eyr­is­sjóði. Sam­tals námu því laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur til stjórn­ar­manna í félag­inu um 354 þús­und Banda­ríkja­dölum eða rúm­lega 46 millj­ónum króna. 

Greiðsl­urnar fóru til fimm núver­andi stjórn­ar­manna auk fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns félags­ins, Úlf­ars Stein­dórs­son­ar, sem hætti í stjórn í fyrra­sum­ar. 

Árið 2020 fengu þau fimm sem sátu í stjórn Icelandair Group í lok þess árs og tveir stjórn­ar­menn sem hættu á því ári sam­tals rúm­lega 239 þús­und Banda­ríkja­dali, 31,2 millj­ónir króna, í laun og hlunn­indi og tæp­lega 28 þús­und Banda­ríkja­dali, um 3,6 millj­ónir króna, í líf­eyr­is­sjóðs­greiðsl­ur. Sam­an­lagt fengu stjórn­ar­með­limir því 34,8 millj­ónir króna í greiðslur á árinu 2020. 

Kostn­aður Icelandair Group vegna launa, hlunn­inda og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna stjórn­ar­manna jókst því um 11,3 millj­ónir króna milli ára, eða um þriðj­ung. 

Hæstar greiðslur fékk Nina Jons­son, vara­for­maður stjórnar Icelandair Group, en sam­an­lagðar greiðslur til hennar voru 832 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Guð­mundur Haf­steins­son, stjórn­ar­for­maður Icelandair Group, fékk 789 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði í laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur fyrir stjórn­ar­setu sína í Icelandair Group. 

Þetta kemur fram í árs­­reikn­ingi Icelandair Group sem birtur var í síð­­­ustu viku.

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Icelandair Group, sem var birt í Kaup­höll Íslands á mánu­dag, er lagt til að stjórnin verði áfram skipuð sömu fimm ein­stak­lingum eftir næsta aðal­fund, en að ekki sé til­efni til að end­ur­skoða greiðslur til stjórn­ar­manna. Þar segir einnig að það sé við­var­andi áhætta fyrir félagið að lyk­il­starfs­menn hætti þar sem þeir fá ekki nægi­lega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr fram­kvæmda­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síð­asta aðal­fundi. Í við­tölum sem nefndin tók við stjórn­endur og stjórn­ar­menn í félag­inu kom fram að þeir teldu þörf á „sterk­ari varð­veislu­á­ætlun ásamt end­ur­skoð­uðu starfs­kjara­fyr­ir­komu­lagi æðstu stjórn­enda“.

Laun for­stjóra hækk­uðu um helm­ing

Kjarn­inn greindi frá því í gær að ​Bogi Nils Boga­­son, for­­stjóri Icelandair Group, hafi fengið 518 þús­und Banda­­ríkja­dali í laun og hlunn­indi á síð­­asta ára. Á árs­loka­­gengi árs­ins 2021 eru það 67,5 millj­­ónir króna eða 5,6 millj­­ónir króna á mán­uði. Til við­­bótar fékk Bogi Nils 119,6 þús­und Banda­­ríkja­dali í líf­eyr­is­greiðsl­­ur, eða 15,6 millj­­ónir króna á ofan­­greindu gengi. Það þýðir að laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­greiðslur hans á síð­­asta ári voru sam­tals 83,1 millj­­ónir króna, eða rúm­­lega 6,9 millj­­ónir króna að með­­al­tali á mán­uð­i. 

Auglýsing
Laun Boga hækk­­uðu umtals­vert milli ára. Hann var með 355 þús­und Banda­­ríkja­dali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þús­und Banda­­ríkja­dali í líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur frá félag­inu. Þegar þessar tölur eru umreikn­aðar í íslenskar krónur á árs­loka­­gengi síð­­asta árs þýða þær að laun og hlunn­indi Boga voru 46,3 millj­­ónir króna á árinu 2020, eða tæp­­lega 3,9 millj­­ónir króna á mán­uði, og líf­eyr­is­­sjóðs­greiðsl­­urnar alls 9,9 millj­­ónir króna. Sam­tals voru laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 millj­­ónir króna miðað við árs­loka­­gengi 2021, eða 4,7 millj­­ónir króna á mán­uð­i. ​

Laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­sjóðs­greiðslur Boga hækk­­uðu því um 48 pró­­sent í Banda­­ríkja­dölum talið milli ára.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­­spurn til Icelandair Group vegna máls­ins og óskaði eftir útskýr­ingum á launa­hækkun for­­stjóra. Í svari upp­­lýs­inga­­full­­trúa félags­­ins sagði að breyt­ing­una megi „lang­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­stjóri á sig 30 pró­­sent launa­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­reikn­ingur félags­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­um. Með­­al­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­un­ina í árs­­reikn­ingn­­um.“

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­­ríkja­­dal veikt­ist um 2,5 pró­­sent á síð­­asta ári. 

Mikið tap í fyrra

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­­­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­­­ríkja­döl­­­um. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­­­arði króna á síð­­­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins. 

Rekstr­­­ar­tap á síð­­­asta ári var 17,7 millj­­­arðar króna, en end­an­­­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæð­­­ar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Tra­vel og Icelandair Hot­els, og tekju­­­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­­­lausri frestun á greiðslu skatta.

Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­­­­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­­arðar króna. Því hefur sam­­­­stæðan tapað yfir 79 millj­­­­örðum króna á síð­­­­­­­ustu fjórum árum.

Fyr­ir­vari: Guð­mundur Haf­steins­son, stjórn­ar­for­maður Icelandair Group, á tæp­lega 1,9 pró­sent hlut í útgáfu­fé­lagi Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent