Krefjast enn að kosið verði um áframhald viðræðna við ESB

14088079625_1618443eaa_z.jpg
Auglýsing

Hóp­ur­inn sem stóð að úti­fundum á Austu­velli vorið 2014, þar sem kraf­ist var að kosið yrði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið (ES­B), hefur sent frá sér áskorun þar sem krafan er ítrek­uð. Áskor­unin kemur í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra boð­aði að nýtt frum­varp um við­ræðu­slit yrði lík­lega lagt fram á þessu þingi. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fylgdi í kjöl­farið og sagði að þing­flokkur hans myndi styðja við slíkt frum­varp.

Nokkur þús­und manns mót­mæltu nokkrar helgar í röð í febr­úar og mars á síð­asta ári í kjöl­far þess að Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra lagði fram til­lögu um að slíta við­ræðum við ESB. Frum­varpið var lagt fram í kjöl­far birt­ingar skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands gerði um við­ræð­urn­ar. Sam­kvæmt henni vor­u veru­lega litlar líkur á því að Ísland geti fengið und­an­­þágur frá grunn­reglu­verki ESB. Skömmu síðar kom út skýrsla Alþjóða­stofn­unar Háskóla Íslands sem sýndi allt aðra nið­ur­stöðu og sagði að Ísland hefði þegar náð fram ýmis konar und­an­þág­um.

Á meðal aðstandenda útifundanna var Benedikt Jóhannesson. Á meðal aðstand­enda úti­fund­anna var Bene­dikt Jóhann­es­son.

Auglýsing

Skipu­leggj­endur mót­mæl­end­anna, og margir þátt­tak­end­anna í þeim, töldu að stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur, hefðu lofað því fyrir síð­ustu kosn­ingar að slíta ekki við­ræðum við ESB nema að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæð­ar­greiðslu um mál­ið.

Ályktun aðstand­enda úti­fund­anna við Aust­ur­völl vorið 2014:



Við krefj­umst þess enn að staðið verði við lof­orðið um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu!



Fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013 lof­uðu flestir ráð­herrar rík­is­stjórnar Sig­mundar Dav­íðs þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­band­ið.

Eftir kosn­ing­arnar ákvað rík­is­stjórnin hins vegar að standa ekki við lof­orðið og lagði fram frum­varp um að umsókn Íslands yrði aft­ur­köll­uð.

Ákvörð­unin vakti mikla reiði og þús­undir lögðu leið sína á Austu­völl og kröfð­ust þess að stjórn­mála­menn stæðu við orð sín. Eins kom fram í skoð­ana­könn­unum að 82% lands­manna vildu taka ákvörðun um málið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og 53.555 Íslend­ingar skrif­uðu undir áskorun þar um til ráða­manna.

Þessi miklu við­brögð end­ur­spegl­uðu megna óánægju Íslend­inga með með­höndlun máls­ins. Almenn­ingur reis með afger­andi hætti upp gegn rík­is­stjórn­inni og skila­boðin voru skýr og afdrátt­ar­laus. Að lokum hætti stjórnin við að afgreiða frum­varpið um aft­ur­köllun umsókn­ar.

Það eru mikil von­brigði að sjá rík­is­stjórn­ina und­ir­búa sams konar til­lögu, um aft­ur­köllun umsókn­ar, á nýju ári. Því verður svarað fullum hálsi; rík­is­stjórn sem gengur gegn vilja þjóð­ar­inn­ar, er ekki rík­is­stjórn þjóð­ar­inn­ar.

For­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins lof­aði því, fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013, að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan skyldi fara fram á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins. Hann getur enn staðið við lof­orðið með því að leggja fram frum­varp um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fyrir 27. jan­úar (boða þarf til kosn­inga með þriggja mán­aða fyr­ir­vara).

Við krefj­umst þess, nú sem áður, að rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs falli frá áformum um að aft­ur­kalla umsókn­ina og standi við lof­orðið um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Aðstand­endur úti­fund­anna á Aust­ur­velli vorið 2014

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None