Kvikmyndahúsagestir ekki færri síðan 2005

bioscreen.jpg
Auglýsing

Aðsókn að kvik­myndum í fullri lengd á land­inu öllu hefur minnkað um 16 pró­sent frá því árið 2009. Á síð­asta ári nam aðsóknin tæp­lega 1,38 millj­ónum gesta sam­an­borið við tæp­lega 1,65 millj­ónir gesta árið 2009. Gestir kvik­mynda­hús­anna hafa ekki verið færri en frá árinu 2005. Hag­stofan birti í morgun upp­færðar tölur um aðsókn í kvik­mynda­hús á síð­asta ári.

Aðsókn síð­asta árs jafn­gildir því að hver lands­maður hafi séð almenna kvik­mynda­sýn­ingu ríf­lega fjórum sinnum á árinu. Aðsókn á íbúa í ein­stökum lands­hlutum er mest á höf­uð­borg­ar­svæði eða 5,5. Í þeim lands­hlutum þar sem kvik­mynda­hús voru starf­andi á síð­asta ári var aðsóknin minnst á íbúa á Vest­ur­landi og á Norð­ur­landi vestra, eða innan við ein kvik­mynda­húsa­ferð á íbúa innan lands­hlut­ans.

Auglýsing

Frá árinu 2009 hefur kvik­mynda­húsa­gestum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fækkað um 249 þús­und gesti, eða um tæp 18 pró­sent. Öðru gegnir með aðsókn að kvik­mynda­sýn­ingum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en á síð­asta jókst aðsóknin um ríf­lega 18 þús­und, eftir nær sam­felldan sam­drátt í aðsókn nokkur und­an­farin ár.

And­virði seldra aðgöngu­miða á land­inu öllu á síð­asta ári nam 1.487 millj­ónum króna sam­an­borið við 1.530 millj­ónir árið á und­an. Hlut­deild inn­lendra kvik­mynda í and­virði greiddra miða nam 12 af hundraði og hefur ekki verið hærri. Hlutur inn­lendra kvik­mynda í aðsókn var tíu af hundrað­i,  eða 138 þús­und sýn­ing­ar­gest­ir. Banda­rískar kvik­myndir höfðu lang­sam­lega mesta hlut­deild á liðnu ári hvort heldur er miðað við aðsókn eða tekjur af miða­sölu, eða 84 pró­sent og 82 pró­sent.

Á síð­asta ári voru starf­rækt 15 almenn kvik­mynda­hús með 41sýn­ing­ar­sal á níu stöðum á land­inu. Sæta­fram­boð var 6.799 og sýn­ingar á viku að með­al­tali um 800.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None