Lagt til að Finnur Árnason verði nýr stjórnarformaður Íslandsbanka

Þrír nýir stjórnarmenn koma inn í sjö manna stjórn Íslandsbanka á komandi aðalfundi félagsins. Næsti stjórnarformaður verður að óbreyttu fyrrverandi forstjóri Haga. Til stendur að selja meira af eign ríkisins í bankanum í sumar.

Finnur Árnason stýrði smásölurisanum Högum í 15 ár.
Finnur Árnason stýrði smásölurisanum Högum í 15 ár.
Auglýsing

Til­nefn­ing­ar­nefnd Íslands­banka leggur til að þrír nýir ein­stak­lingar verði kjörnir í stjórn bank­ans á kom­andi aðal­fundi hans, sem verður sá fyrsti sem hald­inn hefur verið frá því að ríkið seldi 35 pró­sent hlut í bank­anum og hann var skráður á mark­að. 

Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með 65 pró­sent eign­ar­hlut í Íslands­banka, til­nefndi fjóra stjórn­ar­menn í stjórn­ina. Þau eru Anna Þórð­ar­dótt­ir, Frosti Ólafs­son, Guð­rún Þor­geirs­dóttir og Heiðrún Jóns­dótt­ir, sem þegar sitja í stjórn bank­ans. Auk þess hefur til­nefn­ing­ar­nefnd Íslands­banka lagt til að þau Finnur Árna­son, Ari Dan­í­els­son og Tanya Zharov verði skipuð í stjórn­ina á aðal­fund­in­um, sem fer fram 17. mars næst­kom­and­i. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að til­nefn­ing­ar­nefndin leggi til í sam­ráði við Banka­sýslu rík­is­ins, að Finnur Árna­son verði kjör­inn for­maður stjórn­ar. Núver­andi for­maður stjórnar er Hall­grímur Snorra­son, sem hefur setið í stjórn­inni frá 2016 og verið for­maður hennar frá árinu 2020. Hann er ekki í fram­boði til stjórnar nú.

Finnur er best þekktur fyrir störf sín hjá smá­söluris­anum Hög­um, þar sem hann var for­stjóri í 15 ár. Hann er auk þess stjórn­ar­for­maður Nýja Land­spít­al­ans og stjórn­ar­for­maður Orms­son. 

Ætla að skila yfir 50 millj­örðum til hlut­hafa

Íslands­­­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­­arðar króna á árinu 2021. Arð­­semi eigin fjár var 14,2 pró­­sent og sem var vel yfir tíu pró­­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­­ar­hlut­­fall bank­ans lækk­­aði úr 54,3 pró­­sent í 46,2 pró­­sent milli ára.

Auglýsing
Eigið fé Íslands­­­banka var 203,7 millj­­arðar króna um síð­­­ustu ára­­mót og eig­in­fjár­­hlut­­fall bank­ans 25,3 pró­­sent. Útlán til við­­skipta­vina Íslands­­­banka juk­ust um 7,9 pró­­sent á síð­­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­­sent. Hreinar vaxta­­tekjur voru 34 millj­­arðar króna og hækk­­uðu um tvö pró­­sent milli ára. Þókn­ana­­tekjur hækk­­uðu hins vegar um 22,1 pró­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­arðar króna. 

Á grund­velli þess­­arar afkomu ætlar Íslands­­­banki að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­­arða króna í arð. Þar af fer 65 pró­­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­­is­ins, eða rúm­­lega 7,7 millj­­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­­sent hlut í bank­­anum fá svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­­um. Sú veg­­ferð mun hefj­­ast með því að stjórn Íslands­­­banka mun leggja til við aðal­­fund bank­ans að hefja end­­ur­­kaup á bréfum fyrir 15 millj­­arða króna á næstu mán­uð­­um.

Næsta skref í sölu Íslands­banka stigið í sumar

Rík­­­is­­­stjórnin ætlar að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­­­sent eign­­­ar­hlut sinn í Íslands­­­­­banka að fullu á næstu tveimur árum. Til stendur að selja um helm­ing útistand­andi hlutar rík­­­is­ins í sumar og ríkið reiknar með að fá um 75 millj­­­arða króna fyrir hann, sam­­­kvæmt því sem fram kom í fjár­­laga­frum­varpi yfir­­stand­andi árs. Það sem eftir stæði yrði svo selt 2023 ef mark­aðs­að­­­stæður yrðu ákjós­­­an­­­leg­­­ar. 

Í grein­­ar­­gerð Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, um frek­­ari sölu á Íslands­­­banka sem birt­ist á vef stjórn­­­ar­ráðs­ins í síð­asta mán­uði kom fram að Banka­sýsla rík­is­ins teldi skyn­sam­legt að næsta skref í sölu Íslands­­­banka væri með útboði á hluta­bréfa­­mark­aði, þar sem hæfir fag­fjár­­­festar fengju mög­u­­leika á að kaupa hluti í bank­­anum á afslætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent