Landsbankinn gefur út skuldabréf í evrum upp á 43 milljarða króna

10016380525-fb1c4ee434-z.jpg
Auglýsing

Lands­bank­inn hf. hefur í dag gefið út skulda­bréf að fjár­hæð 300 millj­ónir evra, eða sem nemur um 43 millj­örðum króna.  Skulda­bréfin eru til þriggja ára, bera fasta þrjú pró­sent vexti og voru seld á kjörum sem jafn­gilda 295 punkta álagi (2,95 pró­sent) ofan á milli­banka­vexti í evr­um. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Lands­bank­an­um.

Í sept­em­ber 2015 réð Lands­bank­inn fjár­fest­ing­ar­bank­ana Citi, Deutsche Bank og J.P. Morgan til þess und­ir­búa ofan­greinda útgáfu.  Fjár­festa­fundir fóru fram dag­ana 21. – 25. sept­em­ber 2015 í Kaup­manna­höfn, Osló, Helsinki, Stokk­hólmi og London.  Skulda­bréfin voru seld til fag­fjár­festa og bár­ust til­boð fyrir 470 millj­ónir evra frá tæp­lega 60 fjár­fest­u­m.  Skulda­bréfin eru gefin út undir ein millj­arðs evra Euro Medium Term Note (EMTN) skulda­bréfara­mma Lands­bank­ans og verða bréfin skráð í kaup­höll­ina á Írlandi.

Lands­bank­inn mun nýta and­virði útgáf­unnar til þess að fyr­ir­fram­greiða veð­tryggð skulda­bréf í erlendum gjald­miðlum sem eru á gjald­daga í októ­ber 2016 og að hluta skulda­bréf sem eru á gjald­daga í októ­ber 2018, sbr. frétta­til­kynn­ingu bank­ans frá 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, að því er segir í til­kynn­ingu.

Auglýsing

„Lands­bank­inn mun áfram vinna að því að breikka og styrkja fjár­mögnun bank­ans í erlendum gjald­miðl­um, meðal ann­ars í þeim til­gangi að end­ur­fjár­magna útistand­andi veð­tryggð skulda­bréf  bank­ans á hag­stæð­ari kjör­u­m.  Í fram­haldi af útgáf­unni í dag, en með fyr­ir­vara um að slita­stjórn LBI hf. ljúki nauða­samn­ingi með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags, mun Lands­bank­inn jafn­framt greiða upp eft­ir­stöðvar 2018 gjald­daga veð­tryggðra skulda­bréfa bank­ans í erlendum gjald­miðl­um, sam­tals að jafn­virði um 22 millj­arðar króna. LBI hf. mun frá sama tíma ávaxta sömu fjár­hæð í erlendum gjald­miðlum með bundnum inn­lánum til októ­ber 2018 hjá Lands­bank­an­um, á kjörum sem sam­svara 1,50% álagi ofan á milli­banka­vext­i,“ segir í til­kynn­ingu frá Lands­bank­an­um.

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ingu að útgáfan breikki fjár­mögnun og styrki Lands­bank­ann. „­Út­gáfan í dag er ánægju­legur áfangi og afar mik­il­væg fyrir Lands­bank­ann enda breikkar hún og styrkir veru­lega fjár­mögnun bank­ans í erlendri mynt.  Aðgangur Lands­bank­ans að erlendum fjár­magns­mörk­uðum byggir m.a. á sterkri fjár­hags­stöðu bank­ans sem end­ur­spegl­ast í því að í sumar hækk­aði alþjóð­lega láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækið Stand­ard & Poor’s láns­hæf­is­ein­kunn Lands­bank­ans í BBB-, og er ein­kunnin jafn­framt með jákvæðum horf­um.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None