Leiðréttingin dýr en árangursrýr leið til að efna pólitískt loforð

15127298022-fda337805f-z.jpg
Auglýsing

Þeir sem urðu fyrir mestu tjóni vegna verð­tryggðra hús­næð­is­lána sinna fá lítið eða ekk­ert úr verð­trygg­ing­unni. Aðr­ir, sem keyptu fyrstu fast­eign fyrir lok árs 2004, hafa ekki orðið fyrir þvi að skuldir þeirra hækka að raun­virði en fá samt miklar tjóns­bætur frá hinu opin­bera. Leið­rétt­ing­ar­að­gerð rík­is­stjórn­ar­innar er því mjög ómark­viss þótt enn sé óljóst hversu mikið af þeim 80 millj­örðum króna sem greiddir verði út fari til spillis, enda hafi aðgerðin verið sam­þykkt án þess að fyrir lægi nema að litlu leyti hvernig hún myndi nýt­ast.

Þetta kemur fram í grein eftir  Gylfa Magn­ússon, lektor í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, sem birt­ist fyrr í dag á Kjarn­anum um þá aðgerð stjórn­valda að lækka höf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­lána um 80 millj­arða króna.

Það hefði jafn­vel verið hægt að kaupa heilu skips­farmana af vél­byssum fyrir lög­regl­una ef út í það er far­ið. Nú eða reisa tvær Hörpur í Skaga­firði. List­inn er nán­ast endalaus

Auglýsing

Í grein­inni segir Gylfi enn­fremur að ýmis­legt annað sé hægt að gera fyrir 80 millj­arða króna en að nota þá í svona aðgerð. Til dæmis byggja nýjan Lands­spít­ala, bæta mennta­kerf­ið, vega­kerf­ið, bæta mjög hag þeirra verst settu í sam­fé­lag­inu, lækka skatta eða lækka skuldir hins opin­bera. „Það hefði jafn­vel verið hægt að kaupa heilu skips­farmana af vél­byssum fyrir lög­regl­una ef út í það er far­ið. Nú eða reisa tvær Hörpur í Skaga­firði. List­inn er nán­ast enda­laus“.

Lýð­ræðið versta stjórn­ar­far­ið, fyrir utan öll hin



Það hafi hins vegar verið póli­tísk ákvörðun að eyða þessu fé með þeim hætti sem var gert og því hafi sú ákvörðun ekki þurft að koma á óvart. Hún hafi í raun verið óum­flýj­an­leg í ljósi þeirra lof­orða sem gefin voru í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Ljósið í myrkr­inu er að upp­hæðin sem varið var í skulda­leið­rétt­ingar hafi ein­ungis verið brot af því sem upp­haf­lega var gefið í skyn. „Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi er auð­vitað skrýtið að skamma stjórn­mála­menn þegar þeir hrinda því í fram­kvæmd sem þeir hafa fengið umboð kjós­enda til að gera, eins og í þessu til­felli. Þá er í raun við kjós­end­urna sjálfa að sakast, eða a.m.k. þann hluta þeirra sem veitti slíkt umboð.

90% íbúða­lánin voru skýrt kosn­inga­lof­orð sem var efnt. Það er dæmi um grá­glettni örlag­anna að nú skuli þeir sem tóku þau fá hluta skuld­anna nið­ur­felldan vegna ann­ars kosningaloforðs.

Það sama átti auð­vitað við í bólunni sem leiddi til hruns­ins. Rík­is­stjórnir þess tíma höfðu nokkuð skýrt lýð­ræð­is­legt umboð til að þenja út fjár­mála­kerf­ið, veikja reglu­verkið og taka ýmsar aðrar ákvarð­anir sem kyntu undir brjál­æð­inu. Enda gerðu þær það. 90% íbúða­lánin voru skýrt kosn­inga­lof­orð sem var efnt. Það er dæmi um grá­glettni örlag­anna að nú skuli þeir sem tóku þau fá hluta skuld­anna nið­ur­felldan vegna ann­ars kosn­inga­lof­orðs.

Kannski stað­festir þetta bara að Win­ston Churchill hafði rétt fyrir sér þegar hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að lýð­ræði væri versta hugs­an­lega stjórn­ar­farið – að und­an­skyldum öllum öðrum sem reynd hafa ver­ið.“

Grein Gylfa er hægt að lesa í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None