Lestur DV tekur kipp en á samt langt í land við að ná fyrri lestrartölum

15003216120-c28ef99ddf-z.jpg
Auglýsing

Lestur DV jókst um tæp 16 pró­sent í síð­asta mán­uði og mælist nú 8,6 pró­sent hjá ald­urs­hópnum 12 til 80 ára. Þótt stökkið sé umtals­vert milli mán­aða er vert að taka fram að lestur DV í apríl mæld­ist 7,44 pró­sent, sem er lang­lægsta hlut­fall les­enda frá því að DV kom aftur inn í mæl­ingar á lestri í upp­hafi árs 2010. Frá því í sept­em­ber 2014, þegar eig­enda­skipti urðu á DV, hefur lestur blaðs­ins dreg­ist saman um 22 pró­sent.  Þetta kemur fram í nýjum tölum Gallup um þróun lestrar prent­miðla á Íslandi sem birtar voru í dag.

Lestur Frétta­blaðs­ins, Frétta­tím­ans og Morg­un­blaðs­ins dregst lít­il­lega saman en Við­skipta­blaðið bætir lít­il­lega við sig á milli mán­aða.

 

Auglýsing

Ungum les­endum DV fjölgar

Lestur DV hefur dreg­ist hratt saman und­an­farna mán­uði í kjöl­far mik­illa átaka um eign­ar­hald mið­ils­ins og mik­illa breyt­inga á starfs­manna­haldi. Reynir Trausta­son, fyrrum aðal­eig­andi DV og rit­stjóri blaðs­ins, var ýtt út af miðl­inum í sum­ar­lok eftir að aðilar undir for­ystu Þor­steins Guðna­son­ar, sem lánað höfðu DV tölu­vert fé, tóku yfir fjöl­mið­il­inn. Með Reyni hurfu á brott allir helstu stjórn­endur DV og nokkrir blaða­menn. Flestir í þeim hópi stofn­uðu síðar fjöl­mið­il­inn Stund­ina.

Í dag er stærsti eig­andi og útgef­andi DV Björn Ingi Hrafns­son. Útgáfu­fé­lag hans heldur líka úti vef­miðl­unum DV.is, Eyj­an.is, Press­an.is og Bleikt.­is.

Nú virð­ist vera að eiga sér stað nokkur við­spyrna því lestur blaðs­ins jókst hratt í síð­asta mán­uði. Hann á þó langt í land með að ná þeim hæðum sem lest­ur­inn var í áður. Nú mælist hann svip­aður og í febr­úar síð­ast­liðn­um, eða í kringum 8,6 pró­sent. Aukn­ingin er mest hjá fólki undir fimm­tugu, en les­endum DV í þeim hópi fjölg­aði um tæp 23 pró­sent í síð­asta mán­uði.



Standa nán­ast í stað



Ekki eru miklar breyt­ingar á lestri stærst­u ­prent­miðla sem taka þátt í prent­miðla­mæl­ingum Gallup.

Frétta­blaðið er áfram sem áður lang­mest lesna dag­blað lands­ins með 51,44 pró­sent lest­ur. Hann dróst saman um 0,35 pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði og var nokkuð stöð­ugur þriðja ­mán­uð­inn í röð. Lestur blaðs­ins hefur hins vegar fallið skarpt þegar litið er yfir lengra tíma­bil og alls um 20 pró­sent á síð­ustu fimm árum. Fallið hefur sér­stak­lega verið mikið hjá Íslend­ingum undir fimm­tugu en nú lesa um 45,03 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­hópi blað­ið.

Morg­un­blað­ið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins, stendur í stað á milli mán­aða. Alls lesa 28,2 pró­sent allra lands­manna blað­ið. ­Lest­ur­inn hefur dreg­ist mikið saman und­an­farin ár líkt og hjá Frétta­blað­in­u.Til að setja það fall í sam­hengi má rifja upp að lestur Morg­un­blaðs­ins var 43 pró­sent árið 2009. Lest­ur­inn hefur dreg­ist skarp­ast saman hjá yngri les­end­um. Í dag lesa undir 19 pró­sent Íslend­inga undir fimm­tugu blaðið og fækk­aði þeim um 3,2 pró­sent á milli mán­aða.

Við­skipta­blað­ið bætir áfram við sig



Frétta­tím­inn, sem kemur út einu sinni í viku og er dreift frítt, mælist með næst­mestan lestur allra prent­miðla, en alls lesa 39,5 pró­sent lands­manna blað­ið. Lest­ur­inn dregst lít­il­lega saman annan mán­uð­inn í röð.

Við­skipta­blað­ið, sem er selt í áskrift, mælist með mesta lestur sem það hefur mælst með síðan að blaðið kom aftur inn í mæl­ingar Gallup í júní 2011, eða 12,4 pró­sent. Það bætir lít­il­lega við sig á milli mán­aða en lestur blaðs­ins hefur auk­ist sér­stak­lega mikið það sem af er árinu 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None