Lífeyrissjóður verzlunarmanna hækkar lífeyrisréttindi um tíu prósent

Næst stærsti lífeyrissjóður landsins hefur ákveðið að hækka lífeyrisréttindi sjóðsfélaga sinna. Hækkunin er afturvirk frá síðustu áramótum og þeir sem fá greiðslur úr sjóðnum munu fá eingreiðslu í nóvember vegna uppsafnaðs ávinnings.

Fjöldi Íslendinga greiðir í Lífeyrissjóð verzlunarmanna í hverjum mánuði.
Fjöldi Íslendinga greiðir í Lífeyrissjóð verzlunarmanna í hverjum mánuði.
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna hefur ákveðið að hækka áunnin líf­eyr­is­rétt­indi í sam­eign­ar­deild sjóðs­ins um tíu pró­sent, sem leiðir til sam­svar­andi hækk­unar líf­eyr­is­greiðslna. Hækk­unin mið­ast við síð­ast­liðin ára­mót og er til­komin vegna góðrar ávöxt­unar eigna und­an­farin ár sem hefur styrkt trygg­inga­fræði­lega stöðu sjóðs­ins. Með­al­raun­á­vöxtun eigna síð­ustu 10 ára er 6,7 pró­sent, síð­ustu 20 ára 4,5 pró­sent og síð­ustu 30 ára 5,4 pró­sent.

Sjóð­ur­inn mun greiða í ein­greiðslu út upp­safn­aða hækkun á árinu og mun sú greiðsla ger­ast í nóv­em­ber. Hún nær til um tutt­ugu og eitt þús­und sjóð­fé­laga, nemur rúmum 1,6 millj­örðum króna eða að með­al­tali um 76 þús­und krónum fyrir hvern líf­eyr­is­þega.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá sjóðn­um. Þar segir enn fremur að sjóðs­fé­lagar geti séð áhrif rétt­inda­hækk­un­ar­innar á sjóð­fé­laga­vef sín­um. Sjóð­fé­lagar sem fá einnig greiðslur frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins eru hvattir til þess að huga að því hvort til­efni sé til að upp­færa tekju­á­ætlun hjá stofn­un­inni.

Auglýsing
Heildareignir líf­eyr­is­­sjóð­anna standa nú í 6.410,5 millj­­örðum króna og hafa aldrei verið meiri. Þeir hafa ávaxtað fé sitt sér­stak­lega vel frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og ýmis konar aðgerðir stjórn­valda og seðla­banka heims­ins ýttu eigna­verði upp.

Frá lokum ágúst­mán­aðar í fyrra hafa eignir sjóð­anna auk­ist um 910 millj­­arða króna. Þar af hafa eignir þeirra inn­­an­lands auk­ist um 504 millj­­arða króna og þar vigtar hluta­fjár­­­eign lang­­mest.  Íslenskir líf­eyr­is­­sjóðir eru saman langstærstu eig­endur þeirra félaga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­­mark­að. Saman eiga þeir, beint og óbeint í gegnum hlut­­deild­­ar­­skír­teini í sjóð­um, um helm­ing allra skráðra bréfa. 

Erlendar eignir íslensku líf­eyr­is­­sjóð­anna hafa líka bólgnað út á tímum kór­ón­u­veirunn­­ar. Virði þeirra er nú 2.257,6 millj­­arðar króna og hefur auk­ist um 406,3 millj­­arða króna milli ára. Nán­­ast öll erlend eign líf­eyr­is­­sjóða, alls 2.196 millj­­arðar króna, er bundin í hluta­bréfum og hlut­­deild­­ar­­skír­tein­um, og því kemur ekki á óvart að sá eign­­ar­­flokkur sé ábyrgur fyrir nær allri virð­is­aukn­ing­unni sem orðið hefur á erlendum eignum íslensku líf­eyr­is­­sjóð­anna frá því í ágúst í fyrra, eða 94 pró­­sent henn­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent