Lögreglan er best á Facebook en skortir „þekkingu og færni" gegn brotum á netinu

logreglan-net000002.jpg
Auglýsing

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er þekkt sam­fé­lags­miðlatröll. Í des­em­ber 2010 ákváðu Þórir Ingv­ars­son, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og þáver­andi lög­reglu­stjóri, Stefán Eiríks­son, að stofna Face­book-­síðu fyrir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það gerðu þeir sem til­raun til að kom­ast í sam­skipti við fólk – sem kom í ljós að var greini­lega alveg til í að fylgj­ast með lög­regl­unni.

Í dag er síða lög­regl­unnar sú íslenska Face­book-­síða sem er með flesta fylgj­end­ur, alls 71.316 tals­ins og Twitt­er-­fylgj­endur eru orðnir rúm­lega 10.400. Til marks um áhrifa­mátt notk­unar emb­ætt­is­ins á þessum miðlum má nefna að sprell Bigga löggu, sem birt­ist í gegnum sam­fé­lags­miðla lög­regl­unn­ar, hefur gert hann að lands­þekktum manni.

Í frétta­skýr­ingu sem Kjarn­inn birti í maí síð­ast­liðnum kom fram að alls tólf starfs­menn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sjá um að birta efni á Face­book-­síð­unni, svara athuga­semdum og einka­skila­boð­um. Þeirra á meðal eru bæði rann­sókn­ar­lög­reglu­menn og þeir sem vinna úti á vett­vangi. Í þeirri frétta­skýr­ingu er haft eftir Þóri að Face­book-­síðan hafi verið sett á lagg­irnar til að bregð­ast við hinu nýja staf­ræna sam­fé­lagi. „Lög­reglan á að vera þar sem fólkið er. Við erum ekki lengur í þjóð­fé­lagi þar sem börn eru úti á leik­velli og fólk að vinna úti. Við erum orðin að miklu leyti staf­rænt sam­fé­lag og það vant­aði kannski staf­ræna lög­reglu“.

Auglýsing

Þessi fram­úr­skar­andi árangur lög­regl­unnar í nýt­ingu tækni­fram­fara til að eiga í sam­skiptum við borg­ara lands­ins hefur vakið verð­skuld­aða heims­at­hygli.

Það kom því flatt upp á marga þegar Jón H. B. Snorra­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, kom í við­tal við Frétta­blaðið í gær og rakti ástæður þess að saka­málum fyrir dóm­stólum hafi fækkað á Íslandi und­an­farin ár. Á meðal þess sem hann til­greindi sem ástæðu var sú að hluti brota­starf­semi hafi færst í auknum mæli á net­ið. Þar nefndi Jón til að mynda við­skipti með ólög­legan varn­ing (t.d. fíkni­efni og þýfi), fjársvika­mál og kyn­ferð­is­af­brota­mál. Það kalli á breytt verk­lag hjá lög­reglu og að sögn Jóns þarf hún "að koma sér upp þekk­ingu og færni þar".

Það verður að telj­ast ótrú­legt ef lög­reglu­emb­ætti sem skarar framúr í heim­inum í því að nýta sam­fé­lags­miðla til að vera í sam­skiptum við borg­ar­ana, noti alls tólf starfs­menn til að birta efni á þeim miðlum og virð­ist með­vituð um hversu „sta­f­rænt sam­fé­lag“ Ísland er orðið hafi hrein­lega verið gripið það illa í bólinu varð­andi notkun glæpa­manna á þessum tækninýj­ungum að það hafi ekki haft fyrir því að koma sér upp „þekk­ingu og færni“ til að takast á við þær breyt­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None