Mælir með að skipta upp Landsvirkjun í smærri einingar

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ segir í nýjasta tölublaði Vísbendingar að raunhæfasta leiðin til að koma á virkri samkeppni á rafmagnsmarkaði sé með því að skipta Landsvirkjun upp.

Hrauneyjafosstöð, sem er í eigu Landsvirkjunar
Hrauneyjafosstöð, sem er í eigu Landsvirkjunar
Auglýsing

Æski­legt væri að koma á virkri sam­keppni á heild­sölu­mark­aði með raf­magn til að minnka sóun á raf­orku, en raun­hæf­asta leiðin til þess væri með því að skipta upp Lands­virkj­un. Þetta skrifar Sig­urður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar HÍ, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem birt­ist á föstu­dag­inn.

Sam­kvæmt Sig­urði hafa orku­pakkar Evr­ópu­sam­bands­ins séð til þess að sam­keppni hafi auk­ist á sölu raf­magni víða um álf­una, þótt hún hafi ekki auk­ist af sama krafti alls stað­ar. Hér á landi virð­ist sam­keppni vera nokkuð líf­leg í smá­sölu á raf­magni, en mun minni í heild­sölu, þar sem Lands­virkjun fram­leiðir um 60 pró­sent af öllu raf­magni sem selt er hér á landi á almennum mark­aði.

Auglýsing

Vegna stöðu sinnar segir Sig­urður að Lands­virkjun ráði miklu um heild­sölu­verð raf­magns, en sam­kvæmt honum getur fyr­ir­tækið haldið verð­inu stöð­ugu með því að minnka fram­leiðslu þegar lítið er keypt af raf­magni og aukið hana svo aftur þegar eft­ir­spurnin eykst. Síð­ustu fjögur árin hefur raf­magns­verð hér­lendis einmitt hald­ist stöðugt, á meðan það hefur tekið miklum breyt­ingum í Skand­in­av­íu.

Minna til spillis með virkri sam­keppni

Við fyrstu sýn finnst mönnum ef til vill að verð­sveiflur valdi aðeins óþæg­ind­um, en raunar gegna þær mik­il­vægu hlut­verki,“ skrifar Sig­urður í grein­inni sinni. „Þegar verð lækkar er meira notað af því sem nóg er til af. Minna fer til spill­is.“ Einnig segir hann að hátt verð gefi neyt­endum til kynna að varan sé verð­mæt og fara beri spar­lega með hana.

Sig­urður sagði að hægt væri að fara ýmsar leiðir til að fjölga fyr­ir­tækjum á heild­sölu­mark­aði með raf­magni, en telur þó upp­skipt­ingu Lands­virkj­unar í smærri ein­ingar vera raun­hæf­ustu leið­ina. Hann segir að þessi til­laga sé ekki ný af nál­inni, en hún kom fram í skýrslu Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) árið 2008 og í við­tali við for­stjóra HS Orku hjá Við­skipta­blað­inu árið 2018.

Þar að auki segir Sig­urður að Bret­land hafi ágæta reynslu af sams konar upp­skipt­ingu sem átti sér stað í kjöl­far laga­breyt­inga árið 1989. Sam­kvæmt honum hefur sam­keppni vaxið jafnt og þétt á raf­magns­mark­aði í Englandi og Wales og hefur þar hlutur stærstu fram­leið­enda minnkað og hlutur lít­illa fyr­ir­tækja vax­ið.

Hægt er að lesa grein Sig­urðar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent