Markaðsvirði skráðra félaga á Íslandi rýrnað um meira en 100 milljarða á fjórum mánuðum

Eftir miklar hækkanir á hlutabréfamörkuðum frá upphafi kórónuveirufaraldurs hafa hlutabréf sem skráð eru í Kauphöll Íslands lækkað umtalsvert í virði síðustu mánuði. Lækkun var meiri í febrúar en hún hefur verið innan mánaðar frá upphafi faraldurs.

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.
Auglýsing

Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem mælir gengi bréfa þeirra tíu félaga á aðal­mark­aði sem hafa mestan selj­an­leika, hefur lækkað um 12,2 pró­sent frá því í byrjun nóv­em­ber í fyrra. Hún lækk­aði alls um 5,3 pró­sent í nýliðnum febr­úar sem er mesta lækkun sem mælst hefur á vísi­töl­unni síðan í mars 2020, þegar heims­far­aldur kór­ónu­veiru skall á af fullum þunga. ­Vísi­talan lækk­aði líka, alls um 4,7 pró­sent, í jan­úar 2022.

Heild­ar­mark­aðsvirði allra skráðra félaga í Kaup­höll­inni, jafnt þeirra sem skráð eru á aðal­markað og First North mark­að­inn,  var 2.420 millj­arðar króna í lok febr­úar en var 2.527 millj­arðar króna í byrjun nóv­em­ber í fyrra. Því hafa 107 millj­arðar króna af mark­aðsvirði horfið á fjórum mán­uð­u­m. 

Þetta má lesa út úr við­skipta­yf­ir­litum Nas­daq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina.

Auglýsing

Miklar hækk­anir síð­ustu ár

Mik­ill gangur hefur verið á hluta­bréfa­mark­aði frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Þannig hækk­uðu bréf í öllum félögum sem skráð eru á aðal­markað á árinu 2021. Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hækk­aði um þriðj­ung á síð­asta ári, sam­an­borið við 20,5 pró­sent á árinu 2020.

Mest hækk­uðu þau hjá Arion banka, alls um 100,5 pró­sent, en minnst hjá Mar­el, stærsta skráða félagi lands­ins og því eina sem er í umfangs­miklum alþjóð­legum vaxtafasa, en bréf þess hækk­uðu um 10,9 pró­sent. Bréf Marel eru líka skráð á mark­aði í Holland­i. 

Bréf í Arion banka hafa lækkað um tíu pró­sent frá því í lok októ­ber í fyrra en bréf í Marel hafa lækkað um 20 pró­sent á sama tíma.

Ýmis félög hafa á sama tíma hækkað í verði. Bréf í Icelandair Group hafa til að mynda hækkað um 11,4 pró­sent frá því í byrjun nóv­em­ber í fyrra og bréf í sjáv­ar­út­vegs­ris­anum Brim hafa hækkað um sex pró­sent.

Þró­unin er í takti við spár og það sem gerst hefur alþjóð­lega, en miklar vaxta­lækk­anir og sér­tækar aðgerðir seðla­banka víðs vegar um heim­inn við upp­haf far­ald­urs, sem mið­uðu að því að dæla ódýru fjár­magni inn í fjár­mála­kerfi heims­ins, ýttu hluta­bréfa­verði skarpt upp.

Síð­ustu mán­uði hafa vextir hins vegar að hækka og hér­lendis eru þeir búnir að fara úr 0,75 í 2,75 pró­sent frá því í maí í fyrra. Þetta er gert til að takast á við aukna verð­bólgu, en á Íslandi er hún nú 6,2 pró­sent og hefur ekki mælst hærri í tæp tíu ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent