Meintur morðingi Nemtsov segist hafa verið pyntaður og neyddur til að játa

h_51833857-1.jpg
Auglýsing

Mað­ur­inn sem játað hefur aðild að morði á rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov ber merki þess að hafa verið pynt­aður og neyddur til að játa á sig morð­ið. Þetta segir And­rei Babus­hk­in, með­limur mann­réttinda­ráðs í Rúss­landi.

Babus­hkin heim­sótti sak­born­ing­inn Zaur Dada­yev í fang­elsi í gær ásamt blaða­manni. Hann sagði við fjöl­miðla í dag að sár væru á lík­ama Dada­yev og að ástæða væri til að halda að hann hefði játað eftir pynt­ing­ar. Hann kall­aði eftir því að óháðir aðilar yrðu fengnir til þess að rann­saka mál­ið.

Babus­hkin segir að Dada­yev hafi sýnt honum för eftir hand­járn og reipi sem hafi verið bundið um fætur hans. Dada­yev hafi sagst hafa játað á sig morðið til þess að vini hans, sem var hand­tek­inn á sama tíma, yrði sleppt úr haldi. Hann hafi ætlað að segja sann­leik­ann þegar hann kom fyrir rétt á sunnu­dag, en ekki fengið að tala.

Auglýsing

Stjórn­völd hafa ekki tjáð sig um ásak­anir Babus­hkin en segja hins vegar að hann hafi brotið lög með því að tjá sig um heim­sókn sína í fang­els­ið. Það gæti flokk­ast sem til­raun til að hafa áhrif á rann­sókn máls­ins.

Í við­tali við Dada­yev sem birt­ist í dag­blað­inu Moskov­sky Komsomo­lets er haft eftir Dada­yev að hann hefði verið lát­inn vera með haus­poka á sér í tvo daga. „Þeir öskr­uðu stans­laust á mig: Drapstu Nemtsov? Ég sagði nei,“ er haft eftir honum þar. Honum hafi hins vegar verið sagt að ef hann ját­aði yrði vinur hans lát­inn laus, og því hafi hann ját­að. „Ég hugs­að­i að þeir myndu bjarga hon­um, og að ég yrði fluttur lif­andi til Moskvu.“

Hinn mað­ur­inn sem hefur verið ákærður fyrir morð­ið, Shagid Gubas­hev, heldur enn fram sak­leysi sínu. Hann seg­ist hafa verið lam­inn og lát­inn vera með haus­poka frá því hann var hand­tek­inn í Ingushetia og þar til hann var kom­inn til Moskvu.

Þrír menn til við­bótar eru í haldi lög­reglu grun­aðir um aðild að morð­inu á Nemtsov, sem var skot­inn fjórum sinnum í bakið í Moskvu seint að kvöldi þann 27. febr­ú­ar. Yfir­völd í Rúss­landi hafa enn ekki gefið út neina ætl­aða ástæðu fyrir því að fimm­menn­ing­arnir hafi myrt Nemtsov.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None