Meiri makríll má fara í mjöl og minna til manneldis

15809575118_986cb22779_b.jpg
Auglýsing

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Sig­urður Ingi Jóhanns­son, breytti í lok júlí síð­ast­liðnum reglu­gerð um stjórn mak­ríl­veiða þannig að hærra hlut­fall mak­rílafl­ans má vinna í fiski­mjöl en áður. Fyrir breyt­ing­una var útgerðum skylt að ráð­stafa mán­að­ar­lega að minnsta kosti 70 pró­sent af mak­rílafla ein­stakra skipa í vinnslu til mann­eld­is. Það hlut­fall hefur nú verið lækkað niður í fimm­tíu pró­sent. Breyt­ing­arnar á reglu­gerð­inni var útgefin þann 31. júlí síð­ast­lið­inn.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu teng­ist ákvörð­unin ekki inn­flutn­ings­banni Rúss­lands sem sett var í dag, en fyrstu fréttir af fyr­ir­hug­aðri útvíkkun inn­flutn­ings­banns­ins voru sagðar í lok júlí og byrjun ágúst. Ekki er lengur talin þörf á að reglur kveði á um að svo hátt hlut­fall fari til mann­eld­is, en á síð­ustu árum hefur nærri 90 pró­sent afl­ans verið unn­inn til mann­eld­is.

Auglýsing


Nokkur umræða skap­að­ist um mjöl­bræðslu útgerða á mak­ríl þegar veiðar hófust á fiski­teg­und­inni árið 2007. Sú stað­reynd að nær allur afl­inn fór í mjöl- og lýs­is­bræðslu var gagn­rýnd. Í kjöl­farið voru settar reglur um lág­marks­afla sem verður að ráð­stafa í vinnslu til mann­eld­is. Þetta hlut­fall hefur nú verið lækkað í reglu­gerð­inni, úr 70 pró­sentum í 50 pró­sent, og má því meiri mak­ríll en áður fara í mjöl­bræðslu.

Segja breyt­ing­una aft­ur­för

Fjallað er um breyt­ing­una á vef Smá­báta­eig­enda í dag. Þar er hún sögð aft­ur­för. „Eftir að hafa tek­ist á örskömmum tíma að færa okkur úr bræðsl­unni yfir í að full­vinna mak­ríl­inn er hér um aft­ur­för að ræða,“ segir í umfjöllun á vef Smá­báta­eig­enda.



Bent er á að hlut­fall mak­ríls af Íslands­miðum til mann­eldis hafi verið 87 til 90 pró­sent af heild­ar­afla allt frá árinu 2011. Árið 2010 var hlut­fallið 60 pró­sent (40 pró­esnt fór þá í fiski­mjöl- og lýs­is­fram­leiðslu) og árið 2009 var hlut­fallið 17 pró­sent. Árið 2007 fór ekk­ert af afl­anum í vinnslu til mann­eld­is.

Aldrei meira af mak­ríl og mark­aðir lok­ast

Haf­rann­sókn­ar­stofnun til­kynnti á þriðju­dag­inn síð­asta að nýj­ustu mæl­ingar sýni að aldrei hafi eins mikið af mak­ríl verið á Íslands­miðum. En í sömu viku og greint er frá þessum tíð­indum þá lok­ast Rúss­lands­mark­að­ur, stærsti mark­aður íslenskra útgerða með upp­sjáv­ar­fisk og hafa þeir á síð­ustu árum verið stærsti kaup­andi mak­ríls.



Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi áætla að við eðli­legar aðstæður hefði virði útflutn­ings á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands numið um 37 millj­örðum króna á þessu ári. Mestu munar um útflutn­ing til Rúss­lands á loðnu og mak­ríl. Áætlað virði útflutn­ings á þessum tveimur fisk­teg­undum er um 23,3 millj­arðar króna árið 2015, miðað við eðli­legar aðstæð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None