Meniga fær 1,5 milljarða króna fjármögnun

Meniga hyggst nýta féð til þess að efla sölu- og markaðsteymi sitt og leggja áherslu á vöruþróun og nýsköpun.

Georg Lúðvíksson forstjóri og meðstofnandi Meniga.
Georg Lúðvíksson forstjóri og meðstofnandi Meniga.
Auglýsing

Fjár­tækni­fyr­ir­tækið Meniga hefur tryggt sér eins og hálfs millj­arðs króna fjár­mögn­un. Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu var fjár­mögn­unin leidd af hol­lenska fjár­fest­inga­sjóðnum Velocity Capi­tal Fin­tech Fut­ures og íslenska fjár­fest­inga­sjóðnum Frum­tak Ventures.

Aðrir þátt­tak­endur voru sænski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Industri­fonden, breski sjóð­ur­inn UK Fut­ure Fund og bank­arnir UniCredit, Swed­bank, BPCE og Íslands­banki. Þessir bankar og fjár­fest­inga­sjóðir eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið lengi í hópi eig­enda og við­skipta­vina Meniga.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Meniga hefur heims­far­ald­ur­inn valdið því að spurn eftir staf­rænni banka­þjón­ustu hefur stór­auk­ist um heim all­an. Féð sem nú fæst frá fjár­festum verður nýtt til þess að efla sölu- og þjón­ustuteymi fyr­ir­tæk­is­ins og áhersla verður lögð á vöru­þróun og nýsköp­un.

Meniga segist ætla að leggja áherslu á nýja vöru sem heitir Carbon Insight.

„Sér­stak­lega verður horft til þró­unar og mark­aðs­setn­ingar á vörum þar sem fjár­tækni og umhverf­is­mál koma sam­an. Á meðal nýrra vara Meniga er umhverf­is­varan Car­bon Insight en hún gerir bönkum mögu­legt að vald­efla við­skipta­vini sína í umhverf­is­mál­um. Með Car­bon Insight geta not­endur net­banka séð áætlað kolefn­is­spor á einka­neyslu sinni og gripið til aðgerða til lág­marka það. Vör­unni er ætlað að hjálpa fólki um allan heim að berj­ast við loft­lags­breyt­ing­ar,“ segir í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Haft er eftir Georg Lúð­víks­syni for­stjóra og með­stofn­anda Meniga að mikil ánægja sé með áfram­hald­andi stuðn­ing fjár­festa. „Nýtt fjár­magn mun gera okkur kleift að mark­aðs­setja vörur okkar til vænt­an­legra við­skipta­vina um allan heim. Car­bon Insight er gott dæmi um vöru sem mik­ill áhugi er á en að minnsta kosti fjórir bankar í jafn­mörgum löndum munu taka hana í gagnið á þessu ári og við sjáum vax­andi eft­ir­spurn eftir henni hjá bönkum um allan heim,“ segir Georg.

Í frétta­til­kynn­ingu Meniga er einnig haft eftir Svönu Gunn­ars­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Frum­tak Ventures, að sjóð­ur­inn hafi frá upp­hafi verið sann­færður um að Meniga hefði mjög spenn­andi vaxt­ar­mögu­leika á sviði fjár­tækni.

„Meniga hefur fest sig í sessi sem öfl­ugur braut­ryðj­andi í fjár­tækni­lausnum fyrir helstu banka um allan heim, en sá mark­aður er nú í örum vexti sem aldrei fyrr,“ er haft eftir Svönu.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent