Mesta aukning atvinnuleysis á Norðurlöndunum

Atvinnuleysi hefur aukist um þrefalt meira hér á landi en á hinum Norðurlöndunum á síðustu tveimur ársfjórðungum, miðað við sama tímabil árið á undan, samkvæmt tölum úr vinnumarkaðskönnun landanna.

1. maí 2019
Auglýsing

Hlut­fall atvinnu­lausra hér á landi var rúmum þremur pró­sentu­stigum hærra síð­asta vetur heldur en á sama tíma fyrir ári síð­an, sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stofu. Þetta er rúm­lega þrefalt meiri aukn­ing atvinnu­leysis en átt hefur sér stað í Nor­egi, Dan­mörku, Sví­þjóð og Finn­landi.

Þetta kemur fram þegar vinnu­mark­aðs­tölur land­anna fimm eru bornar sam­an. Sam­kvæmt þeim var atvinnu­leys­is­hlut­fallið hér á landi 3,8 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi 2019, og var það svipað og í Nor­egi og í Danmörku.

Auglýsing

Á sama tíma var atvinnu­leysið í Sví­þjóð og Finn­landi þó tölu­vert hærra, eða í rúmum sex pró­sent­um. Líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur atvinnu­leysið í Sví­þjóð, Finn­landi, Dan­mörku og Nor­egi auk­ist síðan þá, þó mun minna en Ísland. Að með­al­tali var atvinnu­leysið á síð­asta árs­fjórð­ungi í fyrra og fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs í lönd­unum rúmu pró­sentu­stigi meira en það var á sama tíma árið á und­an.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofur Norðurlandanna.

Á Íslandi hefur atvinnu­leysið hins vegar auk­ist um 3,6 pró­sent á sama tíma, en það var að með­al­tali 7,7 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stofu. Þó er atvinnu­leysið ekki orðið jafn­hátt og í Sví­þjóð, þar sem það mæld­ist 9,7 pró­sent á árs­fjórð­ungn­um, eða í Finn­landi, þar sem það nam 8,3 pró­sent­um.

Nokkur munur hefur verið á mæl­ingum Hag­stofu og Vinnu­mála­stofn­unar á atvinnu­leysi frá því að yfir­stand­andi efna­hags­sam­dráttur hófst í fyrra. Sam­kvæmt grein­ingu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands er meg­in­skýr­ingin á þessum mun sú að upp­lýs­ingar um atvinnu­lausa eru bjag­aðar í vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stofu þar sem atvinnu­lausir svari síðar spurn­ingum henn­ar. Þar af leið­andi mætti áætla að atvinnu­leysi sam­kvæmt Hag­stof­unni sé van­met­ið.

Hins vegar bætir Hag­fræði­stofnun við að Hag­stofan beitir sömu aðferðum og aðrar hag­stofur erlendis og lík­legt sé að þær stríði einnig við svip­aðan vanda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent