Mikil skuldalækkun ríkisins verður vandmeðfarin

fjarmala-1.jpg
Auglýsing

Tak­ist að greiða niður skuldir með því fé sem fæst í tengslum við losun gjald­eyr­is­hafta, þá munu vaxta­gjöld rík­is­sjóðs lækka veru­lega. Ef skuldir verða nið­ur­greidd­ar um 640 millj­arða króna þá gæti það leitt til um 35 millj­arða árlegrar lækk­unar á vaxta­gjöldum rík­is­sjóðs. Miklar skulda­lækk­anir sem þessar eru þó vand­með­farn­ar, að mati hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. „Gæta þarf þess sér­stak­lega að ráð­stöfun þess­ara fjár­muna hafi ekki óæski­leg áhrif á pen­inga­magn í umferð eða önnur áhrif sem gætui stuðlað að þenslu og dregið úr verð­stöð­ug­leika,“ segir í hag­sjá hag­fræði­deldar Lands­bank­ans.

Farið er yfir skulda­stöðu rík­is­sjóðs en heild­ar­skuldir við árs­lok 2014 námu um 1.485 millj­örðum króna. Til við­bótar er ótalin 430 millj­arða króna skuld­bind­ing rík­is­sjóðs við B-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, LSR. Að þeim með­töldum nema skuldir rík­is­sjóðs um 1915 millj­örðum króna sem sam­svarar um 96 pró­sent af lands­fram­leiðslu Íslands á síð­asta ári. Af þessum skuldum voru 1.500 millj­arðar í íslenskum krónum en and­virði 415 millj­arða króna í erlendri mynt. Af inn­lendum skuldum voru 240 millj­arðar skulda í rík­is­bréfum í eigu líf­eyr­is­sjóða. Að með­taldri 430 millj­arða skuld­bind­ingu gagn­vart LSR er eign líf­eyr­is­sjóð­anna af skuldum rík­is­ins því um 63 pró­sent eða 34 pró­sent heild­ar­skulda.

Auglýsing


Fleiri hafa bent á mögu­leg áhrif nið­ur­greiðslu rík­is­skulda í tengslum við losun hafta. Fjár­mála­eft­ir­litið fjall­aði sér­stak­lega um mögu­leg áhrif á fjár­festa, þar á meðal líf­eyr­is­sjóði, í umsögn sinni við frum­varp fjár­mála­ráð­herra um stöð­ug­leika­skatt. Kjarn­inn fjall­aði um umsögn eft­ir­lits­ins í síð­ustu viku. Að mati FME þarf að skoða sér­stak­lega hvort bregð­ast þurfi við ýmsum hlið­ar­á­hrifum vegna stöð­ug­leika­skatts- eða fram­lags. Hlið­ar­á­hrif gætu orðið nei­kvæð hvað varðar fjár­fest­ing­ar­mögu­leika fjár­festa vegna lækk­unar á skuldum rík­is­sjóðs og til­heyr­andi áhrifum á fram­boð rík­is­skulda­bréfa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None