„Mjög fast“ gripið inn í með 10 manna fjöldatakmörkunum

Tíu manna fjöldatakmarkanir verða meginreglan næstu þrjár vikurnar. Margvíslegar takmarkanir verða á starfsemi í samfélaginu vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar. Hart er stigið niður, til að aðgerðir standi skemur, sagði forsætisráðherra.

Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag.
Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag.
Auglýsing

Nið­ur­staða rík­is­stjórn­ar­innar á fundi sínum í dag var sú að grípa „mjög fast“ inn í og beita hörðum aðgerðum til þess að stemma stigu við útbreiðslu breska afbrigðis kór­ónu­veirunnar inn­an­lands. Marg­vís­legri starf­semi í sam­fé­lag­inu verður lokað næstu þrjár vik­urn­ar.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lögðu áherslu á að það, í blaða­manna­fundi í Hörpu, að ákveðið hefði verið að grípa til þess­ara hörðu aðgerða í von um að þær stæðu skemur yfir.

„Með því að stíga fyrr inn og með því að stíga fastar til jarðar getum við látið þetta ástand standa skem­ur,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Hún sagði þetta ein­dregna nið­ur­stöðu rík­is­stjórn­ar­innar og sú nið­ur­staða væri und­ir­byggð af reynsl­unni frá því í haust, er aðgerðir voru hertar í skref­um. Ákvörð­unin væri byggð á miklum sam­ræðum við sótt­varna­lækni og til­lögum hans.

„Við ótt­umst það að ef ekki er gripið inn í núna gæti það komið verr niður á rekstr­ar­að­ilum með því að við þyrftum að ganga lengra síðar og ekki bara ganga lengra heldur í lengri tíma,“ sagði fjár­mála­ráð­herra við RÚV að fundi lokn­um.

Íþrótta­starf, sund­laug­ar, sviðs­listir og barir í lás

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti þær aðgerðir sem gripið er til. Nýjar reglur taka gildi á mið­nætti í kvöld og gilda um allt land næstu þrjár vik­ur. Ljóst er að þær munu hafa mikil og heft­andi áhrif á dag­legt líf lands­manna.

Tíu manna fjölda­tak­mark­anir verða meg­in­reglan, en 30 manns mega sækja athafnir á vegum trú­fé­laga. Ein­ungis börn fædd 2014 og síðar eru und­an­þegin þessum tak­mörk­un­um.

Sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða lok­að­ar. Sviðs­listir þurfa að hætta starf­semi á ný. Íþrótta­starf verður sömu­leiðis óheim­ilt, bæði hjá börnum og full­orðn­um.

Barir og skemmti­staðir þurfa að loka á ný, en veit­inga­staðir mega vera opnir til kl. 22 á kvöld­in, með tak­mörk­un­um.

Marg­vís­leg starf­semi verður þannig stöðv­uð, en þó reyndar ekki starf­semi hár­greiðslu­stofa og snyrti­stofa og önnur álíka þjón­usta.

Grunn­skól­um, fram­halds­skólum og háskólum verður lokað fram að páska­fríi. Leik­skólar verða áfram opn­ir.

Auglýsing

Heil­brigð­is­ráð­herra greindi frá því á fund­inum að tekin hefði verið ákvörðun um að hefja aftur bólu­setn­ingu með bólu­efn­inu frá Astr­aZeneca.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynntu þessar hertu aðgerðir á blaða­manna­fundi í Hörpu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent