Mjólkurbúið Kú tekur „í útrétta sátthönd nýráðins forstjóra MS“

ostar_mjolk.jpg
Auglýsing

Mjólk­ur­búið Kú fagn­ar breyt­ingum MS þess efnis að fyr­ir­tækið bjóði smærri fram­leið­endum allt að 300 þús­und lítra af óger­il­sneiddri hrá­mjólk á 85 krónur á hvern lítra, eða á sama verði og MS greiðir bændum fyrir mjólk. Mjólk­ur­búið Kú hefur um ára­bil talið sig njóta mun lak­ari við­skipta­kjara en fram­leið­endur tengdir MS og hefur leitað réttar síns hjá sam­keppn­is­yf­ir­völd­um, þar sem málið er enn til með­ferð­ar.

Þetta segir í til­kynn­ingu frá Ólafi M. Magn­ús­syni, fram­kvæmda­stjóra Kú, þar sem brugð­ist er við ákvörðun Mjólk­ur­sam­söl­unnar um að lækka verð á óger­il­sneyddri hrá­mjólk til ann­arra fram­leið­enda frá og með 1. októ­ber næst­kom­andi.

„Við hjá Mjólk­ur­bú­inu Kú tökum í útrétta sátta­hönd nýráð­ins for­stjóra MS. Við horfum bjart­sýn fram á veg og erum stað­ráðin í að nýta þetta skref í jafn­ræð­isátt til þess að efla starf­semi okkar íslenskum neyt­endum til hags­bóta,“ segir í til­kynn­ingu frá Kú. Ari Edwald tók við starfi for­stjóra MS nú í sum­ar.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá MS í gær sagði að lækk­unin væri til að bregð­ast við umræðu um sam­keppn­is­mál á mjólk­ur­vöru­mark­aði, og til að stuðla að fjöl­breytt­ari og grósku­meiri fram­leiðslu á mjólk­ur­vör­um. „Að­gerðir MS nú miða að því að styrkja smærri fram­leið­endur og gera nýjum aðilum auð­veld­ara með að hefja rekst­ur, byrja fram­leiðslu og ná að vaxa og dafna á mark­að­i,“ sagði í til­kynn­ingu en lækk­unin nemur ell­efu pró­sent­um.

Jákvætt skref



Fé­lag atvinnu­rek­enda (FA) seg­ist „fagna frum­kvæði Mjólk­ur­sam­söl­unnar að því að stuðla að öfl­ugri sam­keppni á mjólk­ur­mark­aði með því að lækka verð á óger­il­sneyddri hrá­mjólk til keppi­nauta sinna“. Það sé klár­lega jákvætt skref og til marks um breyttar áhersl­ur, segir Ólafur Steph­ens­sen, fram­kvæmda­stjóri FA.

Á heima­síðu sam­tak­anna bendir hann á að þótt MS komi þannig til móts við þá gagn­rýni sem fyr­ir­tækið hefur fengið vegna þess hvernig það beitir mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni, dugi það ekki til að laga sam­keppn­is­stöð­una á mjólk­ur­mark­aði. „Sam­keppn­isum­hverfið er áfram mjög óheil­brigt. Þrennt þarf að koma til. Í fyrsta lagi að und­an­þág­ur ­mjólkur­iðn­að­ar­ins frá sam­keppn­is­lögum verði afnumdar, svo og hindr­anir gegn sam­keppni á mjólk­ur­mark­aði í búvöru­lög­un­um. Í öðru lagi þarf að lækka tolla á inn­flutn­ingi, eins og Hag­fræði­stofnun HÍ lagði nýlega til, þannig að inn­lend mjólk­ur­fram­leiðsla fái meiri sam­keppni. Í þriðja lagi ætti að skoða til­lögur sam­keppn­is­yf­ir­valda um að selja frá MS ein­stakar fram­leiðslu­ein­ingar þannig að raun­veru­leg sam­keppni kom­ist á.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None