Mjólkursamsalan gengur í Viðskiptaráð - Allt í lagi þótt hagsmunir fari ekki saman öllum stundum

ari-edwald.jpg
Auglýsing

„Það er þannig, að ef menn vilja hafa áhrif á umræð­una þá verða þeir að vera þar sem umræðan fer fram og gera grein fyrir máli sínu. Okkur líður ekk­ert illa í lýð­ræð­is­legum félags­skap, þar sem skipst er á skoð­un­um. Við munum eflaust líka læra margt af því sem sagt er innan ráðs­ins,“ segir Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS), í sam­tali við Kjarn­ann, um inn­göngu MS í Við­skipta­ráð Íslands. Greint var frá því í dag á vef­síðu Við­skipta­ráðs að Mjólk­ur­sam­salan hafi gengið í sam­tökin.

Við­skipta­ráð (VÍ) hefur meðal ann­ars talað fyrir veiga­miklum breyt­ingum á íslensku land­bún­að­ar­kerf­inu, sagt neyt­endur tapa mestu á núver­andi kerfi og að æski­leg­ast væri að afnema tolla á öllum vöru­teg­und­um. Mjólk­ur­sam­salan er rekstr­ar­fé­lag mjólkur­iðn­að­ar­ins á Íslandi og er í eigu rúm­lega 650 kúa­bænda um land allt.

Auglýsing


FrostiSpurður hvernig hags­munir og sýn Við­skipta­ráðs fari saman með hags­munum MS segir Frosti Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, það ekki víst að hags­munir eða sjón­ar­mið ráðs­ins fari öllum tímum saman með stjórn­endum MS og fyr­ir­tæk­inu. Mjólk­ur­sam­salan sé þó stórt rekstr­ar- og iðn­að­ar­fyr­ir­tæki og við­fangs­efni þess séu af ýmsum toga. Bróð­ur­partur af mál­efna­starfi Við­skipta­ráðs fari saman með hags­munum MS. Auk þess sé það gott fyrir starfið að skiptar skoð­anir og ólík sjón­ar­mið fái að heyr­ast í beinum sam­skipt­um. Grunn­stefna Við­skipta­ráðs breyt­ist ekki þótt sjón­ar­mið ein­staks eða fárra aðild­ar­fé­laga fari á skjön við hana. „Það eru mörg dæmi um að ein­stakir stjórn­endur eða fyr­ir­tæki séu ósam­mála því sem kemur frá okk­ur. En við reyna að vinna almennt með heild­ar­hags­muni að leið­ar­ljósi,“ segir Frosti.

Excel-æf­ingar inn­legg en ekki afdrátt­ar­laus skoðun

Ari Edwald tók við starfi for­stjóra MS í byrjun júlí. Hann var áður for­stjóri 365 miðla og sat sem slíkur í vara­stjórn Við­skipta­ráðs. Með inn­göngu MS í Við­skipta­ráð er ljóst að Ari mun áfram taka þátt í starfi ráðs­ins.



„Mjólk­ur­sam­salan hefur átt aðild að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins (SA) um ára­tuga­skeið og margir for­svars­menn MS hafa verið þar í fram­línu, sér­stak­lega á árum áður. Við­skipta­ráð rekur að flestu leyti svipað prógramm, varð­andi varð­stöðu um hags­muni atvinnu­lífs­ins í heild. Við höfum starfað á vett­vangi SA en ekki VÍ. Ég þekki sjálfur til í VÍ, við ræddum þetta og okkur fannst tíma­bært að fara þangað inn líka og taka þátt í umræð­unni, von­andi til gagns fyrir báða aðila,“ segir Ari um til­komu þess að MS gerð­ist félagi í Við­skipta­ráði.



Spurður um meinta hags­muna­á­rekstra VÍ og MS, einkum hvað tolla­mál varð­ar, segir Ari stefnu Við­skipta­ráðs ekki hafa verið afdrátt­ar­lausa um tolla­af­nám eða um hvort land­bún­aður eigi að þríf­ast á Íslandi eða ekki. „Nið­ur­stöður á vett­vangi svona breiðra sam­taka eru yfir­leitt ein­hvers­konar mála­miðlum og tekur til­lit til margra þátta. Við erum ekk­ert að gera of mikið með eina skýrslu eða álykt­un. Sumt af því er nú bara ágætis excel-æf­ing­ar, sem geta verið inn­legg í umræð­una þó að mönnum geti þótt það mis­jafn­lega breið sýn á mál­in. Stundum eru umræðu­efnin ansi þröngt afmörkuð og taka ekki nægi­lega til­lit til afleiddra þátta.



En það er þannig, að ef menn vilja hafa áhrif á umræð­una þá verða þeir að vera þar sem umræðan fer fram og gera grein fyrir máli sínu. Okkur líður ekk­ert illa í lýð­ræð­is­legum félags­skap, þar sem skipst er á skoð­un­um. Við munum eflaust líka læra margt af því sem sagt er innan ráðs­ins,“ segir hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None