Mun Angela Merkel vinna friðarverðlaun Nóbels?

rsz_h_52126904.jpg
Auglýsing

Ang­ela Merkel Þýska­landskansl­ari og Frans páfi eru á meðal þeirra sem hefur ítrekað verið spáð frið­ar­verð­launum Nóbels þetta árið.

Á föstu­dag­inn verður greint frá því hver hlýtur verð­laun­in ­fyrir árið 2015. Í ár eru til­nefn­ing­arnar 273 tals­ins, sem er næst­mesti fjöldi til­nefn­inga nokkru sinni. Metið var slegið í fyrra þegar 278 til­nefn­ingar bár­ust Nóbels­nefnd­inn­i. Í ár eru 68 stofn­anir eða sam­tök til­nefnd og 205 ein­stak­ling­ar.

Bet­fair, stærsta veð­mála­síða heims­ins, sendi frá sér lista í síð­ustu viku yfir þá sem fyr­ir­tækið telur lík­leg­asta til að hljóta útnefn­ing­una, og þar var Frans páfi á toppn­um. „Jafn­vel þótt eng­inn páfi hafi hlotið verð­launin er Frans oft álit­inn frjáls­lynt tákn,“ sagði Cor­mac Dowl­ing hjá Bet­fair. Aðrir á list­anum voru meðal ann­ars upp­ljóstr­ar­arnir Edward Snowden og Chel­sea Mann­ing, Ban Ki-Moon, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna og Mary Robin­son, fyrsti kven­kyns for­seti Írlands. Aðeins þrjár konur eru í heild­ina á lista Bet­fair yfir 20 lík­leg­ustu verð­launa­hafanna, og þær sitja í þremur neðstu sæt­un­um.

Auglýsing

Merkel komið sterk inn í flótta­manna­krís­unni



Frans páfi er hins vegar kom­inn niður í annað sætið hjá annarri stórri veð­mála­síðu, William Hill. Þar er Ang­ela Merkel Þýska­landskansl­ari komin í efsta sætið og lík­urnar á því að hún hljóti verð­launin eru nú metnar 2/1.

Yfir­maður Frið­ar­rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar í Osló (PRI­O), Krist­ian Berg Harp­viken, spáir því að Merkel hljóti verð­launin í ár, fyrir við­brögð sín við flótta­manna­krís­unni í Evr­ópu. „Á tímum þar sem margir hafa forð­ast að taka ábyrgð hefur Merkel sýnt sanna leið­toga­hæfi­leika og hafið sig yfir póli­tík og farið mann­úð­lega leið í erf­iðum aðstæð­u­m.“ Merkel sé kannski ekki óeig­in­gjörn Móðir Ter­esa, og við­horf hennar hafi heldur harðnað und­an­far­ið, en það muni koma í hlut hennar að stjórna því hvernig farið er að í þessum mál­um.

Merkel var til­nefnd af hópi þýskra þing­manna, en ekki fyrir þátt sinn í flótta­manna­krís­unni, enda þurfti að til­nefna fyrir 1. febr­úar síð­ast­lið­inn og þá höfðu Evr­ópu­ríkin ekki gripið til mik­illa ráð­staf­ana. Hún var til­nefnd fyrir hlut sinn í því að koma á vopna­hléi í Aust­ur-Úkra­ínu.

Lítt þekktur prestur gæti stolið sen­unni



Harp­viken segir að vegna þess að flótta­manna­krísan hafi verið eitt stærsta málið í alþjóða­stjórn­málum á árinu komi fleiri sem því máli tengj­ast til greina sem frið­ar­verð­launa­haf­ar. Hann nefnir sér­stak­lega Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hefur þegar hlotið verð­launin tvisvar, síð­ast árið 1981. Hann nefnir líka prest­inn Mussie Zer­ai, sem er búsettur á Ítalíu en upp­runa­lega frá Erít­reu.

Zerai er líka á list­anum hjá Bet­fair yfir lík­lega verð­launa­hafa, og Tel­egraph fjall­aði um hann í gær sem mann­inn sem gæti tekið verð­launin af páf­an­um, með hans bless­un. Zerai er fer­tugur prestur í kaþ­ólsku kirkj­unni og hann var til­nefndur fyrir að bjarga lífi þús­unda flótta­manna sem fara í hættu­för­ina yfir Mið­jarð­ar­haf­ið, með því að svara í sím­ann. Fólk hringir í hann úr bátum og vöru­bílum ef það er í vanda statt. Hann kemur GPS hnitum og öðrum grund­vall­ar­upp­lýs­ingum til strand­gæsl­unnar á Ítalíu og ESB svo hægt sé að bjarga fólk­inu.

Þetta hófst árið 2003 þegar hann lét blaða­mann hafa síma­númer sitt, en blaða­mað­ur­inn þurfti hjálp við að þýða frá­sagnir Erít­reu­manna sem voru fastir í búðum í Líbýu. Síma­núm­er­inu var dreift og það var skrifað á vegg í líbýsku fang­elsi. Und­an­farin ár hefur hann þannig orðið að nokk­urs konar eins manns neyð­ar­línu, og núm­eri hans hefur verið dreif víða í Norð­ur­-Afr­íku. Nú er svo komið að hann fær sím­töl lengra að, til dæmis frá Jemen og Indónesíu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None