Munu þeir geta ýtt persónulegum metnaði til hliðar og leitt Katrínu til forystu?

gu.mundur.steingr.ms_..rni_.p.ll_.jpg
Auglýsing

Rit­höf­und­ur­inn lands­þekkti Jón Kalman Stef­áns­son skrif­aði grein sem birt­ist á Kjarn­anum í gær og vakti mikla athygli. Þar kall­aði hann eftir því að vinstri- og jafn­að­ar­menn fylki sér á bak­við Katrínu Jak­obs­dótt­ir, for­mann Vinstri grænna, sem leið­toga nýs sam­eig­in­legs fram­boðs í anda R-list­ans. „Ef hún hefur áhuga á að hrifsa sam­fé­lagið úr járn­klóm hags­muna, nýfrjáls­hyggju og lýð­skrumara, þá verður hún að stíga fram og sam­eina vinstri– og miðju­menn að baki sér. Og aðrir for­ystu­menn eiga að víkja. Þeir eiga að taka hags­muni þjóðar fram yfir per­sónu­legan metnað og verða ridd­arar í sveit Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Hennar tími er ein­fald­lega runn­inn upp. Hvort sem henni líkar betur eða verr,“ Segir Jón Kalman í grein­inni.

Áhuga­vert verður að sjá hvort hug­myndin fær hljóm­grunn innan hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Katrín mælist enda með lang­mest traust allra stjórn­mála­manna á Íslandi (46,7 pró­sent) sem sitja á þingi. Flestir aðspurðra í könn­unun telja hana líka ákveðna vinna vel undir álagi, heið­ar­lega, í tengslum við almenn­ing, að hún vinni vel undir álagi og standi vöru um hags­muni almenn­ings. Aug­ljóst er að Katrín höfðar til fólks, þótt flokkur henn­ar, Vinstri græn­ir, geri það ekki (fylgi við flokk­inn mælist 10,8 pró­sent).

Aug­ljóst er að Píratar munu ekki hafa áhuga á sam­starfi þar sem þeir mæl­ast með um þriðj­ung atkvæða um þessar mundir og hug­mynda­fræði þeirra á enga sam­leið með banda­lagi miðju- og vinstri­manna. En mögu­lega hefur ákall almenn­ings eftir Katrínu Jak­obs­dóttur hreyft eitt­hvað við Árna Páli Árna­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Guð­mundi Stein­gríms­syni, for­manni Bjartrar fram­tíð­ar. Báðir mæl­ast með sára­lítið per­sónu­fylgi og flokkar þeirra mæl­ast þeir tveir minnstu á þingi í nýj­ustu könn­unum (Sam­fylk­ingin með 10,7 pró­sent og Björt fram­tíð með 8,3 pró­sent).

Auglýsing

Stóra spurn­ingin er, geta þeir ýtt per­sónu­legum metn­aði sínum til hliðar og leitt Katrínu Jak­obs­dóttur til for­ystu?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None