Myndband: Verkafólk setur fram sína túlkun á auglýsingu SA

sastöff.jpg
Auglýsing

Stöð­ug­leika­aug­lýs­ing Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA) hefur lengi vel farið fyrir brjóstið á stórum hluta verka­fólks. Þar er það hvatt til að sækja sér lágar launa­hækk­anir til að við­halda stöð­ug­leika og lágri verð­bólgu. Sam­hliða hefur verið tölu­vert launa­skrið hjá for­stjórum, í fjár­mála­geir­an­um, hjá kenn­urum og nú síð­ast lækn­um.

Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness, sem Vil­hjálmur Birg­is­son veitir for­stöðu, hefur birt sína túlkun á þeim boð­skap sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins setja fram í þessum þekktu aug­lýs­ing­um.  Þar segir meðal ann­ars að stöð­ug­leik­inn hafi skilað „minna handa verka­fólki sem skilar sér í meira handa stjórn­end­um" og að greiða „lág­marks­laun sem duga ekki fyrir lág­marks­fram­færslu þýðir að við getum aukið bónusa og aðrar kaupauka­greiðslur til okk­ar".

Hér má sjá túlkun verka­fólks á aug­lýs­ing­unni. Í síð­ari hluta mynd­bands­ins birt­ist upp­runa­leg aug­lýs­ing Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

Auglýsing

htt­p://yout­u.be/A3Uv­hIn­UQmI

Hrafn Jóns­son, pistla­höf­undur hjá Kjarn­an­um, setti líka fram harða gagn­rýni á aug­lýs­ingu Sam­taka atvinnu­lífs­ins í nýjum pistli sínum sem birt­ist á fimmtu­dag. Þar segir m.a.:„­Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa gert það að árlegum sið að gefa út klám­fengið mynd­band þar sem lit­ríkar teikn­mynda­fígúrur tala við almenn­ing eins og hann sé greind­ar­skertur um það af hverju það sé öllum fyrir bestu að lág­launa­stéttir haldi áfram að vera fátæk­ar. Það verða allir að taka höndum saman og við­halda þeim árangri í stöð­ug­leika sem náðst hefur síð­ustu ár. Seðla­banka­stjóri tekur í sama streng og auð­vitað fjár­mála­ráð­herra líka. Hinn heilaga stöð­ug­leika ber að vernda líkt og biskup sjálfur hafi blessað hann.

Ég hef reyndar aldrei skilið af hverju það eru lægstu stétt­irnar sem þurfa að halda uppi þessum valta Jenga-turni sem hag­kerfið virð­ist vera. Það virð­ist samt engu skipta hversu mikið af anda­fitu efri þrepin troða í sig – það ógnar engum stöð­ug­leika – en um leið og skúr­inga­kona á Akra­nesi biður um meira en 2,8% hækkun á 214.000 krón­urnar sínar þá leggj­ast allar plágur Egypta­lands á okk­ur. Þetta er stöð­ug­leiki eins og beina­berir leggir á erítreskum þræl sem heldur uppi akfeitum róm­verskum hedónista sem er sífellt að skamma hann fyrir að standa ekki í lapp­irn­ar; kerfi sem stendur og fellur með því að verka­fólk hafi engar ráða­stöf­un­ar­tekjur er fúnda­mentallí galið".

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None