Myndband: Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna syngja "We Are the World"

nato-foreign-ministers-sing-we-are-the-world-for-peace-in-antalya_5976_720_400.jpg
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sótti utan­rík­is­ráð­herra­fund Atl­ants­hafs­banda­lags­ins sem lauk í Anta­lya Tyrk­landi í dag. Á meðal þess sem fjallað var um á fund­inum voru mál­efni Úkra­ínu, Afganistan og breytt örygg­is­um­hverfi í Evr­ópu.

Þar til­kynnti utan­rík­is­ráð­herr­ann um þátt­töku Íslands í stuðn­ings­sjóði við starfs­menntun her- og lög­reglu­kvenna í Jórdaníu í sam­ræmi við áherslur Íslands á að efla þátt­töku kvenna í örygg­is- og frið­ar­mál­um.

Fundað var um breyt­ingar á örygg­is­um­hverfi Evr­ópu vegna hern­að­ar­um­svifa Rússa og upp­gangs öfga­manna í Mið­aust­ur­löndum og Norð­ur­-Afr­íku.  Á fund­inum kom auk þess fram að vel gangi að þróa  við­bún­að­ar­á­ætlun banda­lags­ins sem ætlað er að efla sam­eig­in­legar varnir og við­bragðs­getu Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði að mestu lokið á næsta ári.

Auglýsing

Það voru hins vegar ekki hin alvöru­gefnu þunga­mál sem utan­rík­is­ráð­herr­arnir ræddu sem vöktu mesta athygli á fund­inum heldur gjörn­ingur sem þeir stóðu fyrir á skemmtun að fund­inum loknu. Þar stigu þeir upp á svið, á samt Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóra NATO,  og sungu saman þró­un­ar­landa­hjálp­ar-slagar­ann "We Are the World" eftir Mich­ael Jackson og Lionel Ritchie sem var upp­runa­lega gefið út árið 1985. Gunnar Bragi lét ekki sitt eftir liggja og tók þátt í upp­á­tæk­inu, þótt hann hafi ekki fengið hljóð­nem­ann til að láta söng­ljós sitt skína. Gunnar Bragi birt­ist eftir 55 sek­úndur lengst til hægri á skján­um.

https://www.youtu­be.com/watch?v=2_wfMrz9_mY

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None