Netflix seilist til Kína - 6 milljarða Bandaríkjadala markaður undir

h_50439748-1.jpg
Auglýsing

Banda­ríski afþrey­ing­arris­inn Net­flix á nú í samn­inga­við­ræðum við kín­verskt fjar­skipta­fyr­ir­tæki í von um að kom­ast til lands­ins með þjón­ustu sína. Gríð­ar­legir hags­munir eru í húfi því staf­ræni efn­isveitu­mark­að­ur­inn á net­inu í Kína veltir tæp­lega sex millj­örðum Banda­ríkja­dala árlega. Frétta­mið­ill­inn Bloomberg greinir frá mál­inu.

Net­flix nýtur stuðn­ings Jack Ma, stofn­anda og stjórn­ar­for­manns Ali­baba, sem er stærsta net­fyr­ir­tæki lands­ins, í samn­inga­við­ræð­unum ásamt öðrum vænt­an­legum fjár­fest­um. Aðspurð um teng­ing­una og þreif­ing­arnar við Kína sagði tals­kona Net­flix að fyr­ir­tækið stefni á að ná hnatt­rænni útbreiðslu í lok árs 2016.

Þurfa að lúta rit­stjórn­ar­stefnu kín­verskra stjórn­valda



Spár gera ráð fyrir að eft­ir­spurn í Kína eftir afþrey­inga­efni á net­inu muni allt að því þre­fald­ast til árs­loka 2018. Sam­starf við þar­lent fjar­skipta­fyr­ir­tæki er mik­il­vægt fyrir Net­fl­ix ­vegna strangra skil­yrða kín­verskra stjórn­valda við útgáfu leyfa til efn­isveitna á net­inu. Afþrey­ing­arris­inn leitar því eftir sam­starfs­að­ila sem hafi nú þegar tryggt sér leyfi til að bjóða upp á efni fyrir öll tæki.

Ljóst er að Net­flix mun þurfa að fara eftir strangri rit­skoð­un­ar­stefnu kín­verskra stjórn­valda, nái fyr­ir­tækið fót­festu þar í landi. Þannig þurfa kín­versk stjórn­völd að fara yfir efni afþrey­ing­arrisans, bæði gam­alt og nýtt, áður en það er birt og klippa út það sem þeim þykir óæski­legt að borg­arar sínir berji aug­um. Þetta þýðir auð­vitað að tölu­verður dráttur mun verða á því að nýir þætt­ir, í fram­leiðslu Net­fl­ix, komi fyrir sjónir áskrif­enda efn­isveit­unnar þar sem þeir þurfa áður að vera sam­þykktir til sýn­inga.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None