Norðmenn enn hræddir - valdatafl Sádí-Araba?

ernasolberg.jpg
Auglýsing

Óvissa er það sem helst kemur upp í hug­ann þegar Norð­menn hugsa til kom­andi árs í efna­hags­legu til­liti og árétt­aði Erna Sol­berg, for­sæt­is­ráð­herra Nor­egs, þessa sýn á blaða­manna­fundi síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. „Það er mikil óvissa framundan og við þurfum að taka afleið­ing­unum af því,“ sagði Sol­berg og árétt­aði að erf­iðir tímar gætu verið framundan hjá fólki og fyr­ir­tækjum í byrjun árs 2015.

Vanda­mál í Nor­egi tengj­ast mörgum Íslend­ingum sem búa þar en þeim hefur fjölgað hratt á und­an­förnum árum. Sam­kvæmt gögnum Hag­stofu Íslands búa nú um 8.700 Íslend­ingar í Nor­egi en þeir voru 3.800 árið 2008.

Úr 22 krónum í 17



Eftir að norska krónan féll um átta pró­sent á einum degi, síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, hefur hún lít­il­lega styrkst. Hræðsla hefur þó verið sýni­leg á mörk­uð­um, að því er segir í umfjöllun Dag­ens Nær­ingsliv. Gengi krón­unnar núna er um níu krónur fyrir hverja evru, eða sem nemur því að um sautján íslenskar krónur jafn­gildi einni norskri krónu. Stutt er síðan þessi tala var í tæp­lega 22 krón­um.

Norð­menn búa þó við sterka inn­viði og hafa hinn risa­vaxna olíu­sjóð að mestu (95%) í ávöxtun í eignum utan Nor­egs sem bundnar eru í erlendum mynt­um. Fall krón­unnar heima fyrir hefur því ekki svo miklar afleið­ingar fyrir þann sjóð. Hins vegar getur það haft alvar­legar afleið­ingar fyrir norska hag­kerfið ef verð­fallið á olíu heldur áfram, en blikur eru á lofti í þeim efn­um.

Auglýsing

Valda­tafl?



 

Anatole Kalet­sky, gam­al­reyndur hag­fræð­ingur og pistla­höf­undur The Economist, segir í pistli sem hann birti á vef Reuters í gær að Sádí-­Ar­abía sé mik­ill áhrifa­valdur bak við tjöldin og að ekki sé úti­lokað að hin mikla lækkun á olíu að und­an­förnu, sem flestir grein­endur á mark­aði spáðu ekki fyrir um, teng­ist valda­tafli OPEC ríkj­anna þar sem Rússar hafa nú verið færðir skör neð­ar. Í grein­ingu sinni segir hann að olían geti vel lækkað enn meira, jafn­vel niður í 20 Banda­ríkja­dali á fat­ið, en verðið nú er tæp­lega 60 dalir og hefur það lækkað um tæp­lega 50 pró­sent frá því í júlí.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None