Norðmenn hætta FM-útvarpsútsendingum... fyrir fullt og allt

Channel_Master_14.Transistor_Two.Band_.AM_.FM_._Radio._Model_6518A._Made_in_Japan._Black_Plastic_._Chrome._Circa_1960._.8505886224.jpg
Auglýsing

FM-út­varps­út­send­ingum verður hætt í Nor­egi árið 2017, en þar með verða Norð­menn fyrsta þjóðin til að skrúfa alveg fyrir þess háttar útvarps­út­send­ing­ar. Norski frétta­mið­ill­inn Radi­o.no greinir frá mál­inu. Í stað­inn fær­ast útvarps­út­send­ingar alfarið yfir á staf­rænt form, en ráð­ist verður í breyt­ing­una í Nor­egi í þrep­um, þar sem byrjað verður í Norð­ur­hluta lands­ins.

Til­kynnt var um ákvörð­un­ina að skrúfa alfarið fyrir FM-út­send­ing­ar, eftir tæp tvö ár, á fimmtu­dag­inn. Ákvörð­unin á svo sem ekki að koma neinum á óvart því flestir Norð­menn hlusta í dag á upp­á­halds útvarps­stöðv­arnar sínar með staf­rænum hætti. Þró­unin hefur átt sér stað und­an­farin ár, en 11. jan­úar árið 2017 verður haf­ist handa við að ljúka yfir­færsl­unni fyrir fullt og allt. Í dag er hægt að hlusta staf­rænt á 22 norskar útvarps­stöðv­ar, á meðan ein­ungis fimm útvarps­stöðvar senda út á lands­vísu með FM tækn­inni.

Eins og áður segir verður byrjað að slökkva á FM-út­varps­send­ingum í Norð­ur­hluta Nor­egs þann 11. jan­úar árið 2017, en slökkt verður á síð­asta FM-út­varps­send­inum þann 13. des­em­ber sama ár.

Auglýsing

Stærstu útvarps­stöðvar Nor­egs, rík­is­út­varpið NRK með­talið, sam­þykktu að ráðst í breyt­ing­una með hraði, að því gefnu að svæð­is­bundnar lok­anir skekki ekki sam­keppn­is­stöðu þeirra tíma­bund­ið.

Eins og áður segir verða Norð­menn fyrsta þjóðin til að loka alfarið fyrir FM-út­varps­út­send­ing­ar, en þó nokkur lönd í Evr­ópu og Suð­aust­ur-Asíu eru í sams­konar ferli, og hafa valið staf­ræna tækni undir dreif­ingu útvarps­efnis til fram­tíð­ar.

Staf­ræn útvarps­þjón­usta er talin geta fram­lengt líf útvarps­ins um ókomin ár. Þannig geti útvarps­stöðvar betur komið til móts við þarfir og smekk hlust­enda og brugð­ist betur við örum breyt­ingum sem verða á fjöl­miðla­neyslu not­enda.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None