„Nýja snjóhengjan“: Hundruð milljarða skuldir færast senn af sögulega lágum vöxtum

Margir íslenskir lántakendur nýttu sér fordæmalausar vaxtalækkanir Seðlabankans í faraldrinum til að taka óverðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum. Stóraukin greiðslubyrði bíður þeirra, að öllu óbreyttu.

Fyrir stóran hluta íslenskra heimila er húsnæðislánið stærsti einstaki útgjaldaliðurinn í hverjum mánuði. Lágt vaxtastig kom heimilunum til góða, en sendi húsnæðisverðið á sama tíma í hæstu hæðir. Senn breytist greiðslubyrði fjölmargra heimila.
Fyrir stóran hluta íslenskra heimila er húsnæðislánið stærsti einstaki útgjaldaliðurinn í hverjum mánuði. Lágt vaxtastig kom heimilunum til góða, en sendi húsnæðisverðið á sama tíma í hæstu hæðir. Senn breytist greiðslubyrði fjölmargra heimila.
Auglýsing

Á árunum 2023 og 2024 munu alls 340 millj­arðar í óverð­tryggðum íbúða­lán­um, sem bera fasta vexti í dag, koma til vaxta­end­ur­skoð­un­ar. Þar eru um í 190 millj­arðar króna á seinni hluta árs­ins 2024. Árið 2025 munu svo 250 millj­arða króna lán til við­bótar koma til end­ur­skoð­un­ar.

Fjallað er um þetta í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leiki, sem Seðla­bank­inn gaf út í dag, en ljóst er að þau heim­ili sem tekið hafa óverð­tryggð lán og fest vexti á árunum til ýmist þriggja eða fimm ára á 2020 og 2021 horfa fram á veru­lega hækk­aða greiðslu­byrði á allra næstu miss­erum, ef vaxta­stig í land­inu helst svipað og það er nú.

Eins og sjá má á skýr­ing­ar­mynd Seðla­bank­ans hér á neðan bera þau óverð­tryggðu lán sem koma til vaxta­end­ur­skoðun á síð­ari hluta næsta árs 4,2 pró­sent vexti að með­al­tali og þau sem koma til vaxta­end­ur­skoð­unar árið 2024 4,3-4,5 pró­senta vexti.

Mynd úr Fjármálastöðuleika

Lægstu óverð­tryggðu vext­irnir sem eru í boði hjá við­skipta­bönk­unum þremur í dag eru slétt 7 pró­sent, en það eru breyti­legir vextir Lands­bank­ans. Fastir óverð­tryggðir vextir eru einnig lægstir eða 7,45 pró­sent hjá þeim banka, en 8,15 pró­sent hjá Íslands­banka, þar sem þeir eru hæstir um þessar mund­ir.

Auglýsing

Í umfjöllun Seðla­bank­ans í Fjár­mála­stöðu­leika segir að öðru óbreyttu muni heim­ilin sem bera þessar skuldir þurfa að taka á sig aukna greiðslu­byrði þegar að vaxta­end­ur­skoðun kem­ur, eða grípa til ráð­staf­ana á borð við það að lengja í lánum eða breyta skil­málum lána á annan hátt til að lækka greiðslu­byrð­ina.

„Þetta gæti leitt til þess að auk­inn fjöldi heim­ila kjósi að færa sig yfir í verð­tryggð lán, enda er greiðslu­byrði slíkra lána lægri á fyrri hluta láns­tíma en á sam­bæri­legum óverð­tryggðum lán­um,“ segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Millj­arðar í auk­inn árlegan vaxta­kostnað fyrir heim­ilin

Kon­ráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur sem starfar sem efna­hags­ráð­gjafi Sam­taka atvinnu­lífs­ins, kall­aði þennan stabba hús­næð­is­lána „nýju snjó­hengj­una“ í færslu á Twitter í dag og benti á að það muni skipta mjög mörg heim­ili mjög miklu, upp­hæð sem sam­an­lagt hlaupi á millj­örðum króna árlega, hvar vaxta­stigið í land­inu yrði statt eftir um 2 ár.

„Líka slatti af heim­ilum sem það mun skipta máli fyrir fyrr, sér­stak­lega eftir ár,“ skrif­aði Kon­ráð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent