Nýr námslánasjóður: Mun hærri vextir en hjá LÍN

Reykjavik_Haskoli_Islands.jpg
Auglýsing

Vextir á náms­lánum hjá Fram­tíð­inni, nýstofn­uðum náms­lána­sjóði á vegum fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Gamma, eru mun hærri en hjá Lána­sjóði íslenskra náms­manna, LÍN. Hjá Fram­tíð­inni er hægt að velja um tvenns­konar lána­form, ýmist óverð­tryggða 8,75% breyti­lega vexti eða verð­tryggða 6,45% vexti. Vextir á lánum LÍN eru 1% verð­tryggð­ir. Náms­menn ættu því fyrst að leita fjár­mögn­unar þar, og eru þeir hvattir til þess á heima­síðu Fram­tíð­ar­innar.

Vextir Í námi Eftir náms­lok
Óverð­tryggðir breyti­legir vextir 9,75% 8,75%
Verð­tryggðir fastir vextir 7,45% 6,45%

Vext­irnir á lánum Fram­tíð­ar­innar ráð­ast af kostn­aði við að fjár­magna lán­in. Vext­irnir eru hærri en vextir lána LÍN, það liggur fyr­ir, en ef litið er til ann­ars konar láns­við­skipta þar sem vextir ráð­ast á mark­aði finnst mér þeir vera sann­gjarn­ir, sér­stak­lega í ljósi þess að ekki er kraf­ist ábyrgð­ar­manna né veða,“ segir Hlíf Sturlu­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins, í skrif­legu svari, spurð um hvað ákvarði lána­kjör hjá Fram­tíð­inni og hvort hún telji vext­ina vera háa. Hlíf svar­aði nokkrum spurn­ingum Kjarn­ans skrif­lega.

Auglýsing


Fram­tíðin náms­lána­sjóður tók til starfa í dag. Hámarks­lán sem náms­maður getur tekið hjá sjóð­inum er þrettán millj­ónir og end­ur­greiðslu­tím­inn, sem hefst einu ári eftir að námi lýk­ur, er tólf ár.  Fram kom í til­kynn­ingu frá sjóð­inum að hann verður í fyrstu fjár­magn­aður í gegnum skulda­bréfa­sjóði í stýr­ingu Gamma en stefnt er að því að fjár­magna hann með útgáfu skulda­bréfa.

Fá greitt óháð árangri

Íslenskir náms­menn þekkja vel þau skil­yrði sem þarf að upp­fylla til þess að fá greidd út náms­lán frá LÍN. Sýna þarf fram á náms­ár­angur og eru lánin því greidd eftir að önn lýkur og ein­kunnir liggja fyr­ir. Skil­yrði Fram­tíð­ar­innar eru ekki jafn ströng, en náms­menn eru þó beðnir um að skila inn upp­lýs­ingum um náms­fram­vindu. Þegar sótt er um lán þarf auk þess að skila inn gögnum svo hægt sé að fram­kvæmda greiðslu­mat á umsækj­anda.



„Fram­færsla er greidd út mán­að­ar­lega og upp­hæðir eru ekki tengdar ein­inga­fjölda. Náms­maður sem fær t.d. sam­þykkt lán á haustönn fær lánið greitt út áður en nið­ur­stöður jóla­prófa liggja fyr­ir. Við biðjum náms­menn hins vegar um að skila inn upp­lýs­ingum um náms­fram­vindu áður en við hefjum útgreiðslur á vor­önn, ef sótt var um fyrir árið í heild sinn­i,“ segir Hlíf.

Skapa hvata til að klára námið

Athygli vekur að lána­kjör hjá Fram­tíð­inni eru lak­ari þegar lán­tak­inn er enn í námi, en vext­irnir lækka um eina pró­sentu þegar námi lýk­ur. Hlíf segir þetta gert til þess að skapa hvata. „Við vildum skapa hvata fyrir náms­menn að klára próf­gráðuna með því að lækka vexti við náms­lok. Eftir það tekur við 12 mán­aða greiðslu­hlé þar til end­ur­greiðslur hefj­ast. End­ur­greiðslu­tíma­bil er 12 ár og þá gilda lægri vext­irn­ir,“ segir hún.



Í til­kynn­ingu um stofnun sjóðs­ins í dag sagði að náms­lán Fram­tíð­ar­innar væru í boði fyrir alla náms­menn. „Hér er um við­bót­ar­val­kost að ræða fyrir þá sem þurfa að fjár­magna kostn­að­ar­samt nám, til dæmis erlend­is, eða hafa hug á að mennta sig frekar eftir nokkur ár á vinnu­mark­aði eða með­fram vinn­u,“ sagði í til­kynn­ing­unni. Haft var eftir Hlíf að stofnun sjóð­sns fjölgi mögu­leikum náms­manna til að kosta nám sitt. „Það er til hags­bóta fyrir ein­stak­ling­ana sjálfa að fjár­festa í menntun og um leið sam­fé­lagið allt enda eykst sam­keppn­is­hæfni Íslands með auk­inni mennt­un,“ sagði hún.



Frétt Kjarn­ans um stofnun sjóðs­ins.



Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None