Nýtt bóluefni gegn ebólu skilar fullkomnum árangri

ebola.jpg
Auglýsing

Nýtt bólu­efni gegn ebólu hefur skilað hund­rað pró­sent árangri í fyrstu próf­unum í Gíneu og standa vonir til að bólu­efnið bindi enda á ebólu­far­ald­ur­inn sem geyst hefur í Gíneu, Síerra Leóne og víðar í Vest­ur­-Afr­íku frá því í des­em­ber 2013. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­in, WHO, segir bólu­efnið geta gjör­breytt stöð­unni (e. possi­ble game-chan­ger) og sér­fræð­ingar segja nið­ur­stöður próf­ana afar merki­leg­ar. Erlendir fjöl­miðlar fjalla um málið í dag, meðal ann­ars BBC og The Guar­dian.

Í umfjöllun BBC segir að til­vist bólu­efn­is­ins fyrir átján mán­uðum hefði bjargað þús­undum manna sem lát­ist hafa af völdum ebólu. Vonir standa til að með bólu­efn­inu megi koma í veg fyrir að ebólu­far­aldur breið­ist út aft­ur.

Auglýsing


Til þessa hefur nýja bólu­efnið skilað full­komnum árangri, en sér­fræð­inga WHO segja að hlut­fallið geti lækkað eftir því sem frek­ari gagna er afl­að. Í umfjöllun The Guar­dian segir að bólu­efnið sé árangur sam­starfs ­vís­inda­manna, lækna, styrkt­ar­að­ila og lyfja­fyr­ir­tækja við að búa til bólu­efnið gegn ebólu. Slíkt ferli tekur oft meira en ára­tug en hefur nú verið gert á tólf mán­uð­um, ef þessar fyrstu nið­ur­stöður halda.



„Þetta nýja bólu­efni, ef nið­ur­stöð­urnar halda, gæti verið silf­ur­kúla gegn ebólu og hjálpað við að binda enda á yfir­stand­andi far­aldur og komið í veg fyrir að slík útbreiðsla ger­ist aft­ur,“ sagði Børge Brende, utan­rík­is­ráð­herra Nor­egs, í dag en Nor­egur lagði til fjár­magn við að búa til og fram­leiða bólu­efni.



Veru­lega hefur hægt á útbreiðslu ebólu eftir að far­ald­ur­inn náði hámarki síðla árs 2014. Alls hafa komið upp 27,748 ebólu­til­felli í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne fram til 26. júlí síð­ast­lið­inn og þar af hafa 11.279 dauðs­föll verið skráð. Tala lát­inna er mögu­lega hærri, þar sem ekki er vitað um afdrif allra þeirra sem veikt­ust.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None