OECD svartsýnni en Seðlabankinn en sammála Íslandsbanka

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá OECD mun Ísland ekki ná fyrri efnahagsstyrk fyrr en eftir tvö ár, síðast allra þróaðra ríkja. Spáin er í takti við nýjustu þjóðhagsspá Íslandsbanka, en nokkuð svartsýnni en spár Seðlabankans.

Mathias Cormann, nýr aðalritari OECD
Mathias Cormann, nýr aðalritari OECD
Auglýsing

Efna­hags- og fram­fara­stofn­unin (OECD) býst við hæg­ari efna­hags­bata hér á landi í nýju þjóð­hags­spánni sinni heldur en Seðla­bank­inn spáði í síð­asta hefti Pen­inga­mála. Sam­kvæmt sam­tök­unum verður Ísland hæg­ast allra þró­aðra ríkja í að end­ur­heimta fyrri efna­hags­styrk.

Sam­tökin gera ráð fyrir að hag­vöxtur hér á landi muni ná 2,8 pró­sentum í ár og 4,7 pró­sentum á næsta ári. Þetta er nokkurn veg­inn í takt við þjóð­hags­spá Íslands­banka, sem kom út í síð­ustu viku, en þar var gert ráð fyrir 2,7 pró­senta hag­vexti í ár og 4,9 pró­senta vexti á næsta ári.

Seðla­bank­inn var þó nokkuð bjart­sýnni í nýjasta hefti Pen­inga­mála, en þar bjóst bank­inn við því að hag­vöxt­ur­inn yrði yfir þremur pró­sentum í ár og yfir fimm pró­sentum á næsta ári. Mestu munar þar á einka­neysl­unni, en Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir að hann muni vaxa helm­ingi í ár heldur en Íslands­banki og OECD.

Auglýsing

Sam­kvæmt OECD er efna­hags­við­spyrnan hér á landi bundin mörgum óvissu­þátt­um, þar sem ferða­þjón­ustan væri háð efna­hags­á­stand­inu á heims­vísu og sjáv­ar­út­veg­ur­inn væri við­kvæmur fyrir afla­bresti.

Í spánni var sagt að ýmsar kerf­is­breyt­ingar gætu hjálpað til við að end­ur­raða vinnu­afli í arð­bærar atvinnu­greinar og stuðlað að hag­vexti sem myndi gagn­ast öll­um. Þá töldu sam­tökin einnig að aukin sam­keppni í bygg­ing­ar­iðn­að­inum og ferða­þjón­ust­unni, auk komu erlendra fyr­ir­tækja með mik­illi stærð­ar­hag­kvæmi, gæti hraðað fyrir tækni­breyt­ingum og fjöl­breytni í hag­kerf­inu. Einnig gæti bjögun á vinnu­mark­aði minnkað með auknu sam­starfi háskól­anna við atvinnu­líf­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent