Ofbeldissaga Mayweather í sviðsljósinu

h_51915718-1.jpg
Auglýsing

Talið er að 400 millj­ónir manna hafi horft á hnefa­leika­bar­dag­ann milli Floyd Maywe­ather og Manny Pacqui­ano í gær. Þessi „bar­dagi ald­ar­inn­ar“ vakti mikla athygli og það fór svo að Floyd Maywe­ather sigr­aði, sem þýðir að hann hefur nú sigrað í 48 bar­dög­um. Hann hefur aldrei tap­að.

Fjöl­miðla­at­hyglin í kringum bar­dag­ann var gríð­ar­leg, enda hefur bar­dag­ans verið beðið í fimm ár, en athyglin var ekki öll jákvæð. Bar­dag­inn varð fjöl­mörgum banda­rískum fjöl­miðlum til­efni til þess að rifja upp sögu Maywe­ather, sem er hæst laun­aði íþrótta­maður í heim­in­um. Hann fékk til að mynda um 180 millj­ónir dala fyrir bar­dag­ann í gær.

Maywe­ather á sér mikla of­beld­is­sögu og hefur fengið á sig dóm fyrir að hafa beitt fyrr­ver­andi konu sína ofbeldi fyrir framan börnin þeirra. Hann hót­aði sonum sínum þegar þeir reyndu að stöðva ofbeld­ið. Dóm­ur­inn var þó væg­ur, hann var dæmdur í 90 daga fang­elsi en fulln­ustu dóms­ins var frestað svo að hann gæti barist í hnefa­leika­bar­daga í Las Veg­as.

Auglýsing

Fyrr­ver­andi konan hans, Josie Harris, er móðir þriggja af fjórum börnum hans. Hún steig nýverið fram og sagði frá því að hnefa­leika­kapp­inn beitti hana lík­am­legu ofbeldi í sex skipti, og lýsti einnig miklu and­legu ofbeldi. Alvar­leg­asta árásin var eftir að þau skildu, og það er sú árás ­sem hann var dæmdur í 90 daga fang­elsið fyr­ir. Þá kom hann inn á heim­ili Harris og barna þeirra. Hún var sof­andi þegar hann réðst á hana, kýldi og spark­aði í hana. Elsti sonur þeirra, Koraun, var tíu ára þegar þetta gerð­ist og hann lædd­ist út úr hús­inu og lét örygg­is­vörð vita, sem hringdi á lög­regl­una. Mæðginin sögðu sögu sína í USA Today, þar sem fram kom að Maywe­ather vilji ekki gang­ast við ofbeld­inu þrátt fyrir að hafa játað fyrir dómi. „Hann er heigull,“ sagði son­ur­inn um pabba sinn.

Shan­tel Jackson var trú­lofuð Maywe­ather eftir að hann skildi við Harr­is. Hún hefur líka kært hann fyrir lík­am­legt og and­legt ofbeldi. Hún segir að hann hafi nán­ast haldið henni fang­inni á heim­ili þeirra í Las Veg­as. Hann hafi beint byssu að henni og hótað að skjóta hana.

New York Times er meðal þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðu um ofbeldi Maywe­ather í aðdrag­anda bar­dag­ans. Í grein fjöl­mið­ils­ins kemur einnig fram að árið 2003 hafi hann kýlt tvær vin­konur Harris, játað og fengið skil­orðs­bund­inn dóm. Þá eru einnig nokk­ur ­dæmi um að hann hafi beitt karl­menn ofbeldi og hótað þeim. Í eitt skipti braut hann kampa­víns­flösku á höfði manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None